Pressan

Rósablaðamorðið dularfulla – „Þetta var slátrun“

Mynd
Christina á innfelldu myndinni og hluti af rósablöðunum á stóru myndinni.

Christina Parcell og níu ára dóttir hennar bjuggu í Greenville í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum hjá Lutina Parcell, systur Christina. Christina fannst látin á heimili þeirra og voru rósablöð allt í kringum hana. Hún hafði verið stungin rúmlega 30 sinnum með hnífi.

Það var unnusti hennar, hinn 65 ára Bradley Post, sem hringdi í neyðarlínuna þann 13. október 2021 og tilkynnti um morðið. Hann var einmitt sá fyrsti sem lögreglan beindi sjónum sínum að.

Mynd

         Christina Parcell.

Hann var mjög samstarfsfús og heimilaði lögreglunni að rannsaka farsíma hans. Líklega sér hann eftir því enn þann dag í dag því lögreglan gerði ógnvænlega uppgötvun þegar síminn var skoðaður. Það var mikið magn barnakláms í símanum og var Post úrskurðaður í gæsluvarðhald og síðar ákærður fyrir vörslu þess. Hann var þó fljótlega hreinsaður af grun um að tengjast morðinu.

Rósablöðin

„Það fyrsta sem ég tók eftir, var að það lágu rósablöð út um allt,“ sagði Chris Robinson, lögreglumaður, í samtali við ABC News.

Rósablöðin lágu á víð og dreif um húsið, án þess að nokkurt mynstur væri sjáanlegt, og leiddu lögregluna að líki Christina sem var 41 árs.

„Þetta var mjög ljótt. Það var líka kemísk lykt þarna og mikið blóð. Mjög mikið blóð,“ sagði Robinson einnig.

Mynd

        Aðkoman var hræðileg.

„Þetta var hrein slátrun. Það er engin vafi um það,“ sagði Lutina Parcell, systir Christina.

Lögreglan stóð frammi fyrir erfiðri rannsókn og nánast vonlausri leit að morðingjanum.

Samsæriskenningapíanistinn

Lögreglan ákvað að beina sjónum sínum að John Mello, fyrrum unnusta Christina. Hann var á Ítalíu þegar morðið var framið og því ljóst að hann gat ekki hafa verið sjálfur að verki en það útilokaði ekki að hann hefði haft einhverja aðkomu að því.

Lögreglan vissi að Christina og John höfðu barist grimmdarlega um forræði yfir dóttur þeirra árum saman.

Skyndilega barst lögreglunni ábending um að rétt væri að kanna hvort Zachary Hughes, 29 ára, tengdist málinu. Þessi ábending virtist ekki geta tengst málinu á neinn hátt því Hughes var frá Kaliforníu en var menntaður klassískur konsertpíanisti frá hinum virta Juilliard skóla í New York.

Mynd

         Zachary Hughes.

Hann var ekki á sakaskrá, hafði ekki einu sinni fengið stöðumælasekt.

Hann hafði verið upptekinn við að leika tónverk gömlu klassísku meistaranna frekar en að brjóta lögin. Þess utan tengdist hann Christina ekki á neinn hátt.

Lögreglan komst þó að því að hann tengdist John Mello en taldi þó að hann gæti ekki tengst málinu.

„Eins og að vinna í lottó“

Síðan komu upplýsingar sem leystu málið.

„Það lá enginn undir grun og skyndilega, með einum innslætti á lyklaborðið, fundum við morðingjann. Þetta var eins og að vinna í lottói,“ sagði Blake Wolfe, lögreglumaður, í samtali við ABC News.

Einn af nágrönnum systranna var með dyrabjöllumyndavél sem var mjög næm fyrir allri hreyfingu og tók upp við minnstu hreyfingu.

Svo ótrúlegt sem það nú var þá hafði Ford Explorer verið ekið framhjá húsinu, og þar með fór upptaka í gang, þegar morðinginn gekk inn í hús Parcell-systranna.

Morðinginn var nákvæmlega jafn hár og með sömu líkamsbyggingu og fyrrgreindur Hughes.

Nú var lögreglan komin á slóðina. Hún fann síðan fleiri myndavélar í hverfinu sem sýndu morðingjann koma hjólandi á svörtu reiðhjóli rétt fyrir morðið og síðan hjóla á brott rétt eftir það.

Mynd

         Zachary Hughes á hjólinu.

Leit í ökutækjaskrá tengdi Ford bílinn við bæði reiðhjólið og Hughes.

DNA

Lögreglan var nú komin með nægileg gögn til að fá dómstól til að leggja blessun sína yfir að lífsýni yrði tekið úr Hughes til að hægt væri að rannsaka DNA hans. Maðurinn sem hafði verið talinn mjög ólíklegur til að vera morðinginn var nú sterklega grunaður um ódæðisverkið.

DNA-rannsóknin sýndi að erfðaefni Hughes var það sama og það sem fannst undir fingurnöglum Christina. Það var því hægt að tengja Hughes við morðið á Christina.

Mynd

         Fjöldi stungusára var á líkinu.

Hughes var handtekinn 3. nóvember 2021, grunaður um morð, innbrot, eignaspjöll, samsæri og vörslu vopns sem var notað við ofbeldisbrot.

Þetta voru alvarlegar ásakanir og þá sérstaklega í ljósi þess að engin augljós tengsl voru á milli Hughes og Christina.

En lögreglan hafði komist að ýmsu um Hughes og John Mello, fyrrum eiginmann Christina. Þau höfðu eignast dóttur 2012 en þremur árum síðar skildu þau. Mello fór þá dómstólaleiðina og fékk forræði yfir dótturinni.

Upplognar staðhæfingar

Mello kynntist Hughes 2020 eftir að hann og dóttirin sóttu tónleika hans í Greenville. Þeir tóku tal og varð svo vel til vina að Mello réði Hughes til að sjá um þrif og aðra praktíska hluti á heimili sínu.

Mello flutti til Ítalíu í október 2020 og tók dótturina með án þess að fá heimild dómstóls til þess og án þess að láta Christina vita. Hún fór með málið fyrir dóm og dómurinn kvað upp úr með að þetta bryti gegn umgengnisrétti hennar.

Í apríl 2021 skipuðu ítölsk yfirvöld Mello að fara með dótturina til Bandaríkjanna þar sem málið yrði tekið fyrir dóm.

Þá sendi Mello skilaboð til Hughes, í gegnum WhatsApp, og bað hann um að „hræða líftóruna úr Christina“. Hann sagði að hún ógnaði öryggi dóttur sinnar.

Hann sendi Hughes upplýsingar sem áttu að sanna þetta, þar á meðal fölsuð gögn um að Christina stundaði vændi. Mello hafði einnig haldið þessu fram við yfirvöld en bæði lögreglan og félagsmálayfirvöld vísuðu þessum staðhæfingum á bug eftir að hafa rannsakað þær.

Hughes var mjög áhugasamur og skiptust þeir félagarnir á 1.769 dulkóðuðum skilaboðum í gegnum WhatsApp.

Dreifði nektarmyndum

Eftir að Hughes heimsótti Mello á Ítalíu í maí 2021 voru mörg bréf send til fólks í Suður-Karólínu þar sem Christina var sögð vera vændiskona. Nektarmyndir af henni fylgdu einnig með.

ABC News kannaði þetta og staðfesti að þetta voru upplognar ásakanir og fölsuð gögn.

Mynd

Bréfin voru send til unnusta Christina, vinnuveitanda hennar, nágranna og bars sem hún og Post sóttu stundum.

WhatsApp-samskiptin voru dulkóðuð en lögreglunni tókst að afkóða mörg þeirra. Ein áhugaverðustu skilaboðin voru send daginn sem Christina var myrt, skömmu áður en morðið var framið.

„Hvernig gekk tónlistarrannsóknin?“ spurði Mello.

„Vel. Ég get sagt þér meira í síma,“ svaraði Hughes.

Dæmdur

Réttarhöldin yfir Hughes hófust í febrúar á síðasta ári. Hann kom öllum á óvart með því að játa morðið en sagðist hafa gert það til að „bjarga barninu“.

Hughes sagði að stúlkan hefði verið beitt kynferðislegu ofbeldi af bæði Christina og Post en gat ekki lagt fram neinar sannanir þar um.

Hann sagði að Mello hefði fyrst boðið sér 5.000 dollara og síðan 10.000 dollara fyrir að myrða Christina. Hann sagðist hafa hafnað þessum boðum. Hann hafi bara gert þetta til að bjarga stúlkunni, ekki fyrir peninga.

Mello sagði honum hvar Christina yrði stödd daginn sem hún var myrt sagði Hughes fyrir dómi.

Hann sagðist hafa knúið dyra með blóm og pakka í fanginu til að lokka Christina til að opna dyrnar. Hann hafi sagt henni að blómin væru handa systur hennar.

Hann sagðist hafa tekið byssu upp úr kassanum en hafi hikað því Christina hafi verið miklu viðkunnanlegri en hann reiknaði með.

Þegar hann hikaði réðst hún á hann. Í átökunum rifnuðu blómin og rósablöðin dreifðust út um allt.

Hvað varðaði kemísku lyktina í húsinu sagðist hann hafa áttað sig á að DNA úr honum gæti hafa lent undir fingurnöglum hans í átökunum og hafi hann reynt að fjarlægja það með því að nota þynni.

Hughes var dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir morðið.

John Mello var handtekinn í kjölfar játninga Hughes og situr í gæsluvarðhaldi og bíður þess að réttað verði yfir honum. Hann neitar sök.