Ógnin um árás Rússa hangir yfir öllum austurvæng NATÓ segja mörg aðildarríki varnarbandalagsins.
Ástæðan er að stríðið í Úkraínu gengur alls ekki eins og Vladímír Pútín hafði reiknað með. Úkraína hefur byr í seglin núna, drónar fljúga yfir Moskvu og þolinmæði Rússa fer þverrandi.
Þetta hefur orðið til þess að Eystrasaltsríkin eru byrjuð að tryggja öryggi mikilvægra innviða ef til þess kemur að Rússar ögri þeim.
„Pútín þarfnast nýrrar stigmögnunar, einhverskonar sigur og Eystrasaltsríkin og Pólland eru næsta skotmark hans,“ sagði Robertas Kaunas, varnarmálaráðherra Litáens, nýlega.
Pólski starfsbróðir hans, Wladyslaw Kosiniak-Kamys, sagði í kjölfarið að Pólverjar undirbúi sig undir hugsanlegar ögranir af hálfu Rússa. „Við sjáum að þessi ógn steðjar að öllum austurvæng NATÓ,“ sagði hann.
Þetta á því við um Pólland, Rúmeníu, Finnland og Eystrasaltsríkin.