Pressan

Getur fólk orðið 200 ára? – Ný rannsókn varpar ljósi á þetta

Mynd
Hann varð nú ekki 200 ára en gamall varð hann.

Lengra líf er orðið markmið vísindamanna og auðjöfra sem leggja háar fjárhæðir í rannsóknir á hvernig sé hægt að stöðva öldrunarferlið. Ef lyf og læknisfræði framtíðarinnar geta frestað mörgum af öldrunarferlum líkamans þá eru hugsanlega líffræðileg mörk sem ekki er hægt að fara yfir þegar kemur að ævilengdinni.

UniLad skýrir frá þessu og segir að þetta sé niðurstaða vísindamanna við Skolkovo Institute of Science and Technology og AIRI í rannsókn sem þeir gerðu á þessu. Vísindamennirnir segja að uppsöfnun stökkbreytinga í líkamanum sé það sem leiki stærsta hlutverkið hvað varðar að setja náttúrulegar hömlur á ævilengdina.

Fyrrgreindar stökkbreytingar eru litlar og eiga sér stað í erfðaefni frumnanna og gerist þetta allt lífið. Þetta er eðlilegur hluti af öldrunarferlinu. Þegar þessar stökkbreytingar verða nægilega margar, geta þær veikt virkni frumnanna og aukið líkurnar á sjúkdómum.

Vísindamennirnir þróuðu líkan sem átti að sýna hversu lengi fólk gæti fræðilega séð lifað ef allt öldrunarferlið yrði fjarlægt. Niðurstaðan er að það séu líkamleg mörk á þessu og að hámarksaldurinn yrði á bilinu 146 til 194 ár.

Rannsóknin bendir einnig til að líkaminn eldist ekki allur eins. Líffæri á borð við lifrina og húðina geta myndað nýjar frumur og gert við tjón en heilinn og hjartað eru miklu verr í stakk búin til að setja nýjar frumur í stað skemmdra. Þetta er ein stærsta hindrunin fyrir að við getum lifað mjög lengi.

Vísindamennirnir leggja áherslu á að stökkbreytingarnar skýri aðeins hluta af öldruninni. Önnur líffræði ferli gegna einnig mikilvægu hlutverki og þess vegna telja þeir að það sé hæpið að hægt verði að finna eina einfalda lausn sem getur orðið til þess að fólk geti lifað öldum saman.