28 ára karlmaður í Florida í Bandaríkjunum hefur verið handtekinn og ákærður fyrir stórfellda líkamsárás eftir að hafa, að sögn, stungið 12 ára frænda sinn í mjöðmina í heimahúsi.
Hinn grunaði heitir Andrew Zagazeta.
Samkvæmt handtökuskýrslu var lögregla kölluð á vettvang 31. júlí vegna hnífstungu. Langamma drengsins sagði lögreglu að komið hefði til rifrildis milli frændanna vegna leikjatölvu. Hún sagðist hafa reynt að skakka leikinn en ekki séð neinn hníf meðan á rifrildinu stóð. Eftir að eldri frændinn, Andrew, yfirgaf húsið sagði drengurinn henni hins vegar að hann hefði verið stunginn.
Drengurinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hann fékk meðferð vegna um eins sentímetra djúps stungusárs á mjöðm.
Þegar lögregla ræddi við drenginn á sjúkrahúsinu sagði hann að frændi hans hefði ýtt sér þegar hann gerði athugasemd við að hann væri að nota leikjatölvuna án leyfis. Hann kvaðst þá hafa tekið hníf úr hnífastandi í eldhúsinu en lagt hann aftur frá sér þegar langamman stöðvaði rifrildið. Að sögn drengsins náði hinn 28 ára gamli frændi þá í annan hníf sem falinn var fyrir aftan sjónvarpið og stakk hann í mjöðmina.
Ekki kemur fram í opinberum gögnum hvað hinn grunaði sagði í yfirheyrslu hjá lögreglu. Hann situr nú í gæsluvarðhaldi á meðan málið er til rannsóknar.
Sjá nánar hér.