Pressan

Fjögurra barna móðir barðist fyrir lífi sínu - Bitin af 15 köngulóm

Mynd

Fjögurra barna móðir berst fyrir lífi sínu eftir að fjölskylduskemmtun breyttist í hrylling þegar hún varð fyrir árásum fjölda kóngulóa.

Í maí fór Britagne Miller ásamt fjölskyldu sinni í útilegu. Eitt kvöldið sat hún við varðeld við vatn með eiginmanni sínum, Jake Miller, og fjórum börnum þeirra, þegar um 15 köngulær skriðu á hana og fóru að bíta hana á líkamanum.

Miller hugsaði ekki mikið út í atvikið í fyrstu, en tók eftir því að marblettur hafði myndast nálægt öðrum kálfanum á henni, og var mikill verkur við marblettinn.

„Marbletturinn hélt áfram að bólgna út og bólgna út, og þetta var eins og eldur sem er úr málmi,“ sagði hún við staðarmiðil. „Það var eins og stingandi verkur niður fótinn, og það var eins og verið væri að stinga í hann.“

Mynd

Ástand Miller versnaði svo mikið að hún var flutt á sjúkrahús eftir að heilbrigðisstarfsmenn uppgötvuðu blóðtappa á fæti hennar, sem þurfti tafarlausa aðgerð.

Maðurinn hennar skrifaði á GoFundMe söfnunarsíðuna að fylgikvillar í tengslum við aðgerðina hafi komið upp vegna lifrarsjúkdóms á lokastigi sem Miller glímdi við..

„Þetta gerði skurðaðgerðir og reglubundna umönnun mun hættulegri, læknar vöruðu við því að henni gæti blætt út. Margir læknar sögðu okkur að hún ætti kannski aðeins nokkra daga til einn mánuð eftir ólifaða og mæltu með líknarmeðferð eftir aðeins tvær vikur á sjúkrahúsinu.“

Jake sagði að Miller hefði fengið blóðeitrun, sem leiddi til þess að læknar þurftu að „framkvæma tvær aðgerðir við sjúkrarúmið til að fjarlægja dauða húð og setja hana á viðbótar sýklalyf“. Hún neitaði að gefast upp. Hún sagði læknunum að hún myndi berjast fyrir því að lifa eins lengi og hún gæti fyrir fjölskyldu sína og hún krafðist þess að þeir gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að bjarga henni.“

Sem betur fer lifði Miller fyrstu veikindin og aðgerðirnar af þó að Jake hafi útskýrt að kona hans sé langt frá því að vera heil heilsu. Hún þarfnast lifrarígræðslu, þó læknar ætli ekki að framkvæma aðgerðina fyrr en Miller er orðin nógu heilsuhraust, sem gæti tekið nokkra mánuði.

Jake hefur verið við hlið konu sinnar allan tímann en missti vinnuna þar sem hann þurfi að annast fjögur börn þeirra hjóna. Vegna tekjutaps og dýrra læknisreikninga útskýrði Jake á GoFundMe að fjölskylda hans væri í „erfiðri fjárhagsstöðu“. Þegar þetta er skrifað hafa nærri 28.000 dollarar verið gefnir til málefnisins.

„Að biðja um hjálp er eitt það erfiðasta sem við höfum nokkurn tímann þurft að gera. En núna þarf fjölskyldan okkar á henni að halda. Konan mín, Britagne, er sterkasta manneskjan sem ég hef kynnst. Hún er ótrúleg kona, frábær móðir fjögurra fallegra barna okkar og sú manneskja sem hélt fjölskyldu okkar saman. Ef þú hefur einhvern tímann hitt Britagne, þá veistu að hún setur alltaf aðra ofar sjálfri sér. Hún hefur gott  hjarta og hefur eytt lífi sínu í að annast fólkið sem hún elskar.“