Pressan

Einn látinn og tveir slasaðir eftir sprengingu á Kanaríeyjum

Mynd

Einn starfsmaður lést og tveir slösuðust alvarlega í sprengingu sem varð í eldsneytisgeymslu á iðnaðarsvæðinu Salinetas á Gran Canaria í gær, miðvikudaginn 5. ágúst. Sprengingin varð þegar viðhaldsvinna stóð yfir í eldsneytisgeymi á geymslusvæði orkufyrirtækisins DISA.

Samkvæmt upplýsingum frá bæjaryfirvöldum í Telde er staðfest að einn maður hafi látist en tveir verið fluttir alvarlega slasaðir á sjúkrahús. Fyrstu upplýsingar bentu einnig til þess að einn starfsmaður væri ófundinn eftir sprenginguna, en síðar komu fram vísbendingar um að hann væri óhultur.

Rannsókn bendir til þess að starfsmennirnir hafi unnið við viðhald á eldsneytisgeymi sem talið var að væri tómur þegar sprengingin varð. Juan Antonio Peña, bæjarstjóri í Telde, sagði í samtali við Televisión Canaria að logsuðuvinna hafi verið í gangi í einum af stóru geymunum þegar eitthvað fór úrskeiðis. Sprengingin var svo öflug að hún heyrðist víða um nærliggjandi strandsvæði, meðal annars í Salinetas og Melenara, og eldtungur sáust rísa upp frá svæðinu skömmu eftir sprenginguna.

Mikill viðbúnaður var settur af stað og slökkvilið, lögregla, almannavarnir og sjúkraflutningamenn voru send á vettvang. Svæðið var girt af og yfirvöld segja enga hættu lengur á annarri sprengingu. Íbúar hafa verið beðnir um að forðast ferðir um iðnaðarsvæðið á meðan björgunar- og rannsóknarstörf standa yfir.

Orsök sprengingarinnar liggur ekki fyrir, en rannsókn stendur yfir á því hvað fór úrskeiðis við viðhaldsvinnuna og í hvaða ástandi eldsneytisgeymirinn var þegar verkið hófst.

Sjá nánar hér