Pressan

Einn hrottalegasti morðvettangurinn áratugum saman í Svíþjóð

Mynd
Helle og Isakin.

Þann 12. nóvember 2010 hringdi Isakin Jonsson í lögregluna í Skara í Svíþjóð og sagðist hafa myrt unnustu sína, hina fertugu Helle Christensen. Þegar lögreglumenn komu á vettvang blasti einn hrottalegasti morðvettangurinn áratugum saman í Svíþjóð við þeim.

 Isakin hafði ekki aðeins myrt Helle, hann hafði einnig hlutað lík hennar í sundur og játaði að hafa eldað hluta af því og borðað á meðan hann beið eftir lögreglunni.

Isakin ólst upp við erfiðar aðstæður og eyddi stórum hluta æskunnar á stofnunum. Þegar hann óx úr grasi rataði nafn hans á sakaskrá vegna þjófnaðar- og fíkniefnamála. Hann glímdi einnig við andleg veikindi.

Hann kynntist Helle 2009 þegar þau voru sjúklingar á sömu geðdeildinni. Þau tengdust tryggðaböndum á grunni andlegra veikinda sinna og erfiðrar fortíðar og fljótlega tókust ástir með þeim. Bæði voru á sakaskrá og áttu börn úr fyrri samböndum. Þau vonuðust til að geta byggt nýtt líf saman.

Haustið 2010 bjuggu þau í blokk í Skara en það var móðir Isakin sem leigði hana. Ekki var annað að sjá en þau væru að reyna að byggja sér nýtt líf og ferskir vindar blésu um þau. En á bak við luktar dyr var annað að sjá.

Eftir morðið sagði systir Helle að hún hefði oft sótt hana í kjölfar deilna hjónaleysanna. Hún sagðist aldrei hafa trúað Helle þegar hún sagði að Isakin beitti hana ofbeldi. Helle var oft þakin marblettum og brotnaði eitt sinn á þremur stöðum á sama fótleggnum.

Dagbókin hennar sagði enn dekkri sögu. Í henni lýsti hún hversu hrædd hún var við Isakin, skapsveiflur hans, þráhyggju hans hvað varðaði að refsa og djöfulinn og sífellt árásargjarnari hegðun hans. En þrátt fyrir þetta sagðist hún hafa haldið kyrru fyrir því hún elskaði hann og tryði að hann gæti tekist á við þetta.

Skömmu áður en hún var myrt, hafði hún samband við bókasafnsfræðing og bað um aðstoð við að finna stað þar sem hún gæti gist og verið örugg. Hún bað konuna um að hafa ekki samband við lögregluna.

12. nóvember 2010

Um hádegið fóru Helle og Isakin að versla. Hún keypti í matinn en hann fór og keypti bjór og snafsaflösku. Síðan fóru þau heim og eyddu síðdeginu saman.

Á milli 17 og 19 er talið að Helle hafi lagst út af til að hvílast eða lesa. Þá réðst Isakin á hana og skar á háls. Síðan skar hann fötin utan af henni og misnotaði líkið kynferðislega.

Þar með var óhugnaðinum ekki lokið því hann notaði hníf, sög og öxi til að afhöfða líkið og skera bita af holdi af handleggjum hennar og fótum. Hann steikti bitana síðan á pönnu og setti kannabis og salt út á og borðaði síðan. Höfuð hennar var á eldhúsborðinu á meðan á þessu stóð og hófst hann handa við að „vinna“ það. Líklega ætlaði hann að borða það.

En skyndilega, nánast jafn hratt og ofbeldið hafði hafist, tók Isakin símann upp og hringdi í lögregluna. Sallarólegur sagði hann: „Þegar þið komið, þá þurfið þið ekki að stökkva á mig. Ég er eins rólegur og ég get orðið og ég vil gera það sem er rétt . . . Ég hef enga hugmynd um að ég hafi gert þetta en ég er vaknaður.“

Þegar hann var yfirheyrður í fyrsta sinn talaði hann mikið um andlega heilsu sína og játaði að hann væri hættulegastur þegar hann tæki ekki lyfin sín. Hann sagðist hafa rifist við Helle daginn örlagaríka en gat ekki útskýrt hvað hefði valdið þessari skyndilegu reiði. Daginn eftir sagði hann að einhver annar hefði verið að verki í gegnum hann og sagði að þetta hefði verið eins og nokkrar manneskjur væru í herberginu og að þetta hafi verið eins og að horfa á kvikmynd.

Þegar réttarhöldin yfir honum hófust í mars 2011 lék engin vafi á að hann hefði banað Helle. Spurningin var hvort hann hefði verið sakhæfur þegar hann banaði henni. Hann var sakfelldur en á grundvelli geðmats var niðurstaðan að hann hefði þjáðst af alvarlegum andlegum veikindum, þar á meðal ofskynjunum og geðveikiseinkennum á morðstundinni. Hann var því ekki dæmdur til fangelsisvistar, heldur til vistunar á réttargeðdeild. Í dómsorði var kveðið á um að hann skyldi dvelja þar til læknar og dómstóllinn teldu að ekki stafaði alvarleg ógn af honum lengur.

Hann var látinn laus 2020 en nýtur enn þjónustu réttargeðdeildarinnar þótt hann búi í eigin íbúð í Katrineholm.