Pressan

Bifvélavirki varar fólk við að leggja bílum svona – „Þeir geta endað á verkstæði“

Mynd

Sumir hafa vanið sig á það þegar þeir leggja bíl í þröngt stæði að snúa hjólunum og láta þau nema við kantsteininn. En fæstir átta sig á hvaða afleiðingar þetta getur haft.

Juan José Ebenezer, bifvélavirki, segir að þetta slíti bílnum meira en marga grunar. Í samtali við Motorpasion sagði þessi bílaverkstæðiseigandi í Sevilla að ekki eigi að skilja bílinn eftir með hjólin í beygjustöðu þegar honum er lagt. Hann sagði að vandamálið við þetta sé að þetta valdi álagi á stýrið og fjöðrunina klukkustundum saman og að þar með byggist slit upp vikum og mánuðum saman. „Þeir geta endað á verkstæði,“ sagði hann.

Ef hjólin eru í beygjustöðu, þá dreifist þyngd bílsins ekki jafnt á dekkin, hún safnast á eitt lítið svæði dekkjamynstursins. Samtímis er spenna á ákveðnum hlutum stýrisins og fjöðrunarinnar sem ættu annars að vera í hvíld.