Ef þú hreyfir þig í 30 mínútur á dag, þá minnka líkurnar á að þú fáir alvarlegt stress um 26%.
Þetta eru niðurstöður nýrrar rannsóknar sem Det Nationale Forskningscenter for Arbejdsmiljø í Danmörku gerði.
Í umfjöllun B.T. kemur fram að við tveggja mínútna áreynslu minnki líkurnar á alvarlegu stressi um 2% og síðan stighækki líkurnar alveg þangað til hreyfingin varir í 30 mínútur og eru orðnar 26% þá.
Ef hreyfingin varir lengur en í 30 mínútur þá minnka líkurnar áfram en ekki á sama hraða.
Lars L. Andersen, prófessor einn höfunda rannsóknarinnar, sagði í fréttatilkynningu að hægt sé að flétta hreyfingunni inn í það sem gert er daglega. Það sé hægt að gera litlar æfingar með vinnufélögunum, til dæmis halda fundi gangandi í staðinn fyrir sitjandi.
Tæplega 75.000 manns á aldrinum 40 til 69 ára tóku þátt í rannsókninni og var fylgst með fólkinu í átta ár. 533 lentu í alvarlegum veikindum eða stressi á tímabilinu.