Sá undarlegi atburður átti sér nýlega stað á ítölsku eyjunni Sikiley að peningaseðlabúnt rak á land og upp að landi. Margir strandgestir lögðust til sunds til að ná sér í peninga.
Ástæðan fyrir þessu peningaflóði var að bátur frá Möltu brotnaði skyndilega undan ströndinni. Strandgæslan var send á vettvang og bjargaði manni og átta ára dreng.
Bild skýrir frá þessu og segir að skyndilega hafi tveir ungir menn sprottið fram úr felustað sínum á bátnum. Annar greip tösku, kastaði henni í sjóinn og stökk á eftir henni. Hinn stökk síðan á eftir honum.
Þeir syntu báðir til lands. Lögreglan handtók annan en hinn komst undan og veit lögreglan ekki hver hann er.
Lögreglan stöðvaði peningasöfnun strandgesta og lagði hald á peningana. Segir lögreglan að hún hafi náð næstum öllum seðlunum en um 670.000 evrur var að ræða.
Lögreglan telur að mennirnir þrír séu frá Möltu og séu á aldrinum 20 til 30 ára.
Drengnum var komið í umsjá barnaverndaryfirvalda. Talið er að hann tengist mönnunum ekki fjölskylduböndum og leitar lögreglan nú að foreldrum hans.