Margir velja að stunda hlaup eða hjólreiðar til að halda sér í formi en samkvæmt því sem Cleveland Clinic segir þá er sund ein áhrifamesta hreyfingin fyrir líkamann.
Þegar maður æfir í vatni, vinna handleggir, fætur og vöðvar allan tímann. Vatnið hlífir liðum og hnjám af því að líkaminn er léttari í vatni.
Þetta gerir sund að góðri hreyfingu fyrir þá sem glíma við liðaverki, ofþyngd eða skerta hreyfigetu að sögn Cronista.
Cleveland Clinic segir að regluleg sundiðkun hjálpi líkamanum að bæta blóðstreymið. Hjartað nær að dæla blóðinu betur þegar líkaminn vinnur gegn mótstöðu vatnsins.
Sérfræðingar benda einnig á að sund getur lækkað blóðþrýstinginn og dregið úr blóðfitunni. Þess utan geta lungun styrkst við sundiðkun.
Rannsóknir hafa sýnt að fólk, sem stundar sund reglulega, á síður á hættu að fá hjartasjúkdóma og blóðtappa.
Sund er notað sem þjálfun fyrir suma sjúklinga eftir að þeir hafa glímt við hjartavandamál. En þetta er aðeins gert undir eftirliti lækna og heilbrigðisstarfsfólks.