Pressan

Þau voru heitustu stuðningsmenn Trump – Nú stofna þau hreyfingu honum til höfuðs – „Hann hefur svikið okkur öll“

Mynd
Frá stofnfundi nýja stjórnmálaaflsins.

Donald Trump glímir við mörg vandamál þessa dagana. Um síðustu helgi bættist enn eitt við. Ný stjórnmálahreyfing leit dagsins ljós en tilkynnt var um tilurð hennar með ljósmynd úr sumarhúsi í Maine.

Á myndinni sjást stofnendur hreyfingarinnar sitja við matarborð undir ljósakrónu úr hornum og veiðirifflar og bandaríski fáninn prýða bakgrunninn.

Fyrir ekki ýkja löngu hefði þessi hópur verið kallaður „MAGA stjörnurnar“. Ástæðan er að þetta eru nokkur stærstu nöfnin í hópi hörðust stuðningsmanna og kjósenda Trump síðustu 10 árin.

Meðal þeirra eru sjónvarpsstjarnan fyrrverandi Tucker Carlson og Marjorie Taylor Greene og Thomas Massie, fyrrum þingmenn Repúblikanaflokksins.

Allt þetta fólk á það sameiginlegt að hafa lent upp á kant við Donald Trump og það vill hefna sín á manninum sem það hjálpaði að ná völdum.

„Hann sveik okkur öll“

Það var Marjorie Taylor Greene sem deildi myndinni á samfélagsmiðlum á laugardaginn. Hún lét af þingmennsku eftir að hafa lent upp á kant við Trump vegna ýmissa mála.

„Við sögðum: Ekki fleiri stríð í útlöndum. Og við meintum þetta þegar við studdum Donald Trump af því að hann lofaði þessu. En hann sveik okkur öll,“ skrifaði Greene við myndina.

Síðan bætti hún við: „Loforð okkar er Bandaríkin fyrst fyrir alla Bandaríkjamenn, óháð því hvort þeir eru til hægri, vinstri eða í miðjunni. Hreyfingin er komin af stað.“

Margir stjórnmálaskýrendur hafa lengi átt von á þessu því margir af helstu stuðningsmönnum Trump hafa snúið baki við honum og áttu margir því von á að þeir myndu taka saman höndum til að takast á við forsetann.

Það ýtti enn frekar undir þessa hugsun að Tucker Carlson sagði stóru viðtali í júlí að líklega yrði nýr stjórnmálaflokkur stofnaður til að takast á við tveggja flokkakerfið í landinu. Hann sagði flokkana hafa misst tilfinninguna fyrir vandamálum venjulegra Bandaríkjamanna.

„Sérstaklega þegar kemur að „stríði og efnahagsmálum“ eru Demókratar og Repúblikanar næstum eins,“ sagði hann þá.