Pressan

Stakk sér í sjóinn á vinsælum ferðamannastað – Það átti eftir að hafa slæmar afleiðingar

Mynd

Kona varð mjög veik af sníkjudýrum eftir að hún stakk sér til sunds og gleypti sjó. Katherine Hopkins er 35 ára gömul og starfaði að húðflúrlistakona var að njóta lífsins á ströndinni í Brighton á Englandi þegar hún varð skyndilega mjög veik. 

Í viðtali við Mirror lýsir hún sundferðum sínum í síðari hluta maí þegar mikil hitabylgja reið yfir Bretlandseyjar, hún segist ekki hafa farið í kaf en hún hafi hins vegar skvett vatni framan í sig. 

Tíu dögum síðar fékk hún hræðilega sársaukafulla magakrampa og þurfti á klósettið allt að 30 sinnum á sólarhring. 

„Það var nærri liðið yfir mig, ég var komin með hita og ég ældi einu sinni. Ég hélt að þetta væri matareitrun en ég hafði ekki borðað neitt þannig. Ég hélt í alvöru að ég væri að fara að deyja,“ segir hún. 

Leitaði hún loks á sjúkrahús þar sem kom í ljós að sníkjudýr væru að valda þessu. Hopkins, sem fékk nýtt nýra þegar hún var yngri, er í áhættuhópi þegar kemur að slíku. Telur hún víst að sníkjudýrin hafi komið úr sjónum.

Stöndin sem er hún var á, Lansing beach, er mjög vinsæl áfangastaður og fær góða einkunn á Tripadvisor.