Pressan

Sængurfötin þín geta verið skítugri en klósettseta

Mynd
Skyldi hún vera nýbúin að skipta á rúminu?

Margir þvo sængurfötin sín vikulega, aðrir oftar en líklega fleiri sjaldnar en einu sinni í viku. En við lestur skýrslu frá Amerisleep læðist sú hugsun óneitanlega að manni að það þurfi að skipta á rúmunum nokkuð oft í mánuði.

Fyrirtækið rannsakaði hvernig bakteríur vaxa í rúmfatnaði sem var notaður í fjórar vikur samfleytt án þess að vera þveginn. Það kom í ljós að bakteríurvöxturinn færist mjög í vöxt eftir fyrstu vikuna.

Í skýrslunni kemur fram að allt að 17.000 fleiri bakteríur gátu verið á koddaveri en klósettsetu eftir einnar viku notkun.

Ekki batnar málið þegar kemur að lakinu. Eftir einnar viku notkun fundust 25.000 sinnum fleiri bakteríur á lakinu en hurðarhúni baðherbergishurðar.

Rannsakendurnir fundu einnig bakteríur sem tengjast lungnabólgulíkum sýkingum og matareitrun.

Niðurstöðurnar sýna að bakteríur geta fjölgað sér hratt, jafnvel þótt sængurfatnaðurinn hafi verið þveginn nýlega.

Þetta þýðir ekki endilega að það fylgi því heilsufarshætta að sofa með sængurfatnað lengur en í eina nótt en ljóst er að bakteríurnar fjölga sér hratt.

Hin almenna ráðlegging um að það eigi að þvo sængurfatnað einu sinni í viku er líklega ekki nægilega góð ef maður vill takmarka fjölda baktería í sængurfatnaðinum.