Maður tekur afstöðu og myndar sér skoðun og stendur við hana þar til maður skiptir um skoðun. Þetta á líka við um Robert F. Kennedy Jr., heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna.
Bandaríkjamenn standa nú frammi fyrir versta mislingafaraldrinum í 35 ár. Þetta varð til þess að ráðherrann kom með óvænta yfirlýsingu og hvatti foreldra til að láta bólusetja börn sín gegn mislingum.
Hann lét þessi orð falla í „State of the Union with Danda Bash“ á CNN. „Foreldrar ættu að láta bólusetja börn sín gegn mislingum. Mislingabóluefnið virkar vel, það kemur í veg fyrir mislinga í um 97% tilfella. Fólk ætti að láta bólusetja sig,“ sagði ráðherrann. Það er engin furða að ummælin hafi komið mörgum á óvart því Kennedy hefur lengi verið efasemdarmaður um bóluefni.
„Þegar þú og ég vorum börn, fengu allir mislinga og mislingar færðu þér . . . ævilangt ónæmi gegn mislingasmiti. Það gerir bóluefnið ekki. Bóluefni virka vel fyrir suma alla ævi en hjá mörgum dregur úr virkni þess,“ sagði hann í mars í samtali við Fox News.