Pressan

Lykilmaður í sænsku glæpagengi dæmdur í ævilangt fangelsi í Írak

Mynd
Sænskir lögreglumenn við störf. Mynd:Getty

Lykilmaður í sænska glæpagenginu Foxtrott var nýlega dæmdur í ævilangt fangelsi í Írak. Hann heitir Ali Shehab og er 22 ára. Hann er sagður náinn bandamaður Rawa Majid, leiðtoga gengisins, sem er oft kallaður „Kúrdíski refurinn“.

Sænskir saksóknarar skýrðu frá dómnum í vikunni og segja að dómurinn sé tilkominn vegna fíkniefnaviðskipta Ali Shehab. Unnu sænskir saksóknarar náið með íröskum starfsbræðrum sínum að málinu.

Ekki er hægt að fá Ali Shehab framseldan til Svíþjóðar því hann hefur bæði sænskan og íraskan ríkisborgararétt. Hann er eftirlýstur á alþjóðavettvangi því hann er grunaður um aðild að fjölda skotárása og morða í Svíþjóð.

Ulf Kristersson, forsætisráðherra, sagðist gjarnan hafa viljað fá Ali Shehabframseldan til Svíþjóðar svo hægt væri að rétta yfir honum þar en um leið sagðist hann gleðjast yfir dómnum.

„Það mikilvægasta er að hann er læstur inni og getur ekki framið fleiri glæpi,“ sagði Kristersson í samtali við Sænska ríkisútvarpið.