Níu ára stúlka lést með grunsamlegum hætti í fjölskylduferðalagi í Arbroath í Skotlandi og þrjú önnur voru flutt á sjúkrahús eftir atvikið. Faðir stúlkunnar hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn málsins.
Metro greinir frá.
Viðbragðsaðilar voru kallaðir út rétt fyrir miðnætti á sunnudagskvöld eftir að tilkynning barst um áhyggjur af velferð fólks á Elliot Industrial Estate, iðnaðarsvæði í Arbroath. Fjölskyldan, sem er frá West Yorkshire á Englandi, hafði komið sér fyrir með lítið tjald á auðu svæði við jaðar bílastæðis olíufyrirtækis, skammt frá vinsælli baðströnd.
Stúlkan var flutt í skyndi á Ninewells-sjúkrahúsið í Dundee þar sem hún var úrskurðuð látin. Lögreglan lítur á andlátið sem grunsamlegt og rannsakar nú tildrög þess, en hefur ekki greint veitt frekari upplýsingar um hvað gerðist.
Kona sem ók fram hjá tjaldsvæðinu áður en harmleikurinn varð sagðist hafa séð lítið tveggja manna fellitjald og rafbíl standa við tjaldið. Að hennar sögn virtust foreldrarnir vera að elda mat á útilegugasi. Henni þótti undarlegt að fjölskyldan hefði valið að tjalda á iðnaðarsvæði þegar falleg sandströnd væri í aðeins örfárra mínútna göngufjarlægð.
Skoska sjúkraliðið staðfestir að fjórar manneskjur hafi verið fluttar á Ninewells-sjúkrahúsið eftir útkallið.
Fyrirtæki á iðnaðarsvæðinu sendi fjölskyldu stúlkunnar og öllum sem komu að björgunaraðgerðum samúðarkveðjur og sagði starfsfólk á svæðinu hafa orðið fyrir miklu áfalli vegna málsins.