Pressan

Borgaði 12.000 í leigu fyrir tvo strandstóla – Síðan uppgötvaði hann hvað vatn kostar

Mynd
Baðströnd. Mynd úr safni

Heimsókn á strönd nærri ítalska bænum Noli hefur hrundið af stað heitri umræðu á samfélagsmiðlum vegna hás verðlags og óvenjulegra gjalda.

Onet skýrir frá þessu og segir að Enco Gera hafi fyrst þurft að punga út við innganginn að ströndinni. Hann var rukkaður um sem svarar til um 15.000 króna fyrir tvo strandstóla og sólhlíf.

Viðbrögð hans við þessari rukkun voru augljóslega þannig að honum fannst þetta hreint rugl. Starfsfólkið bauð honum þá afslátt þannig að kostnaðurinn væri 12.000 krónur. Hann féllst á þetta en þegar hann taldi sig hafa greitt það sem hann átti að greiða beið enn einn reikningurinn eftir honum en bara annars staðar.

Skilti við strandbarinn sagði að það kostaði 140 krónur að fylla flösku með venjulegu kranavatni. Þetta er eitthvað sem er venjulega ókeypis á evrópskum baðströndum.

Frásögn Gera breiddist út eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum. Greip eigandi strandarinnar þá til varna. Hann sagði að gjaldið fyrir vatnið snúist ekki um gróða, heldur um umhverfisvernd til að takmarka notkun einnota plastumbúða.

En skýringar hans breyta því ekki að það er ansi dýrt að fara á ströndina við Noli.