Pressan

Alvarleg læknamistök – Fundu skæri í maga sjúklings mörgum mánuðum eftir aðgerð

Mynd
Mynd úr safni. Mynd:Getty

Þegar fólk gengst undir skurðaðgerð, reikna flestir með að það dragi hægt og rólega úr verkjunum, en ef líkaminn heldur áfram að senda hættumerki frá sér getur í sjaldgæfum tilfellum alvarleg skýring legið að baki.

Þetta var tilfellið í máli sem kom upp í Brasilíu og LadBible fjallaði um.

Þriggja barna móðir, Erica Cristina Bannai Von Hoonholtz, þurfti að fara í legnám í janúar. En í stað þess að batna eftir aðgerðina tóku við miklir verkir mánuðum saman og mikil uppköst.

Þetta endaði með að hún var lögð inn á sjúkrahús í skyndingu í apríl. Hún var send í bráðaaðgerð. Þegar hún var opnuð fundu læknarnir 18 cm löng skæri skurðlæknis í kviðarholi hennar. Þau höfðu gleymst í aðgerðinni í janúar. Hluti af smáþörmunum hafði skaddast af völdum skæranna.

Erica þurfti að fara í fleiri aðgerðir því hún var með gyllinæð og ígerð í þörmum og lifur.

Sjúkrahúsið hefur viðurkennt mistökin og greiðir allan kostnað Erica vegna aðgerða og annars. Fjölskyldu hennar hefur einnig verið boðin sálfræðiaðstoð.