Pressan

20 mánaða gamalt barn lést úr hitaslagi á Kanaríeyjum

Mynd
Mynd: Suc

20 mánaða gamalt barn er látið eftir að hafa fengið alvarlegt hitaslag á Fuerteventura á laugardag. 

Barnið var flutt á Fuerteventura-sjúkrahúsið í lífshættulegu ástandi en síðar flogið með sjúkraflugi á barna- og mæðrasjúkrahúsið á Gran Canaria þar sem sérfræðingar tóku við meðferð. Þrátt fyrir mikla viðleitni lækna tókst ekki að bjarga lífi þess. 

Ekki hafa verið veittar frekari upplýsingar um atvik sem leiddu til hitaslagsins. Miklir sumarhitar hafa verið á Kanaríeyjum undanfarið og heilbrigðisyfirvöld minna á að ung börn eru sérstaklega viðkvæm fyrir hita. Eru foreldrar hvattir til að sjá til þess að börn þeirra fái nóg að drekkar, forðast mikla sól og leita tafarlaust læknisaðstoðar ef einkenni hitaslaga koma fram.

Canarian Weekly greindi frá.