Mörg hundruð fjölskyldur töldu sig hafa kvatt látinn ættingja í hinsta sinn en síðan hringdi lögreglan og heimurinn hrundi í augum þeirra.
„Ég veit ekki hvern, eða hverju, ég dreifði yfir son Susan. Hver var það? Manneskja? Fleiri en ein?“
Þetta sagði David Gorbutts nýlega fyrir dómi í Hull á Englandi þar sem réttað var yfir svikulum útfararstjóra sem fór illa með fjölskyldu Gorbutts og rúmlega 100 til viðbótar. Sky News skýrir frá þessu.
Eiginkona hans, Susan, lést í september 2023. Hún hafði óskað eftir að verða brennd fljótt og að öskunni yrði dreift yfir leiði sonar hennar.
Hálfu ári eftir að Gorbutt taldi sig hafa dreift ösku Susan yfir leiðið sagði lögreglan honum að hún hefði fundið lík hennar og fjölda annarra í útfararstofunni Legacy í Hull. Líkið var svo illa farið að það var aðeins hægt að bera kennsl á það út frá tönnunum.
Gorbutt telur sig þó meðal þeirra heppnu því hann getur nú dreift ösku Susan þar sem hún vildi. Hann veit að það sama á alls ekki við um fjölda fjölskyldna sem treystu útfararstjóranum Robert Bush fyrir látnum ættingjum sínum.
Uppgötvaðist fyrir tilviljun
Rannsókn lögreglunnar hófst í mars 2024 eftir að tilviljun varð til þess að upp komst um athæfi Bush.
Hann var í fríi í Bandaríkjunum með dóttur sinni og hafði beðið tvo aðra útfararstjóra um aðstoð við að finna lík í útfararstofunni hans.
Þegar þeir komu þangað brá þeim mjög í brún yfir því sem þeir fundu, sagði Chris Paxton, saksóknari fyrir rétti að sögn Sky News.
Þeir stöðvuðu lögreglumenn, sem áttu leið hjá, og sögðu þeim hvað þeir höfðu séð. Fleiri lögreglumenn voru strax sendir á vettvang.
Svona var umhorfs í útfararstofu Bush.
Í útfararstofunni fundu þeir „mikinn fjölda líka“ í kæli. Var líkunum staflað í hillur meðfram veggjunum. Flest þeirra voru ekki hulin með neinu og „mismikið rotnuð“.
Þess utan fann lögreglan mikið af mannsösku. Ekki hefur tekist að skera úr um af hvaða fólki hún er og raunar er ekki vitað af hversu mörgum þessi aska er.
Það er því ekki vitað hvort fólk, sem fékk ösku afhenta hjá Bush, hafi fengið rétta ösku.
Andvana fædd börn í pokum
Bush rak útfararstofuna á Hessel Road í Hull í 14 ár. Saksóknarar sögðu fyrir dómi að hann hafi svikið viðskiptavini sína í tæp 12 ár af þessum 14.
Miðað við það sem lögreglan fann í útfararstofunni, þá veit hún að fjölskyldur rúmlega 300 látinna einstaklinga töldu árum saman að ástvinur þeirra hefði verið brenndur eða jarðsettur. En í raun voru lík margra enn í útfararstofunni og rotnuðu þar hægt og rólega.
Aðrar fjölskyldur höfðu fengið ösku afhenta hjá Bush grunlaus um að hún var af ókunnugum en ekki ættingja þeirra.
Pokar fullir af ösku fundust í útfararstofunni.
Ein þeirra er Jasmine Beverly sem fæddi andvana dreng 2022. Í samtali við Sky News sagði hún að ekki hafi annað komið til greina en að Bush myndi annast útför drengsins því hann hafi séð um útför föður hennar 2013 og hafi hún algjörlega treyst honum.
Tæpum tveimur árum eftir fallega útför drengsins hringdi lögreglan og sagðist hafa fundið líkamsleifar hans í plastpoka ásamt armbandinu sem var sett á hann á sjúkrahúsinu.
Lögreglan fann líkamsleifar þriggja annarra andvana fæddra barna í útfararstofunni.
„Hann er skrímsli“
Þegar Bush mætti fyrir dóm, baðst hann afsökunar á gjörðum sínum fyrir framan sjónvarpsmyndavélar en það dugir ekki að mati margra sem eiga um sárt að binda.
„Hann sagði það ekki við mig. Hann var tæpan metra frá mér og hann hafði ekki kjark til að segja þetta við mig. Hann sagði þetta bara við myndavélarnar,“ sagði Tristan Essex við Sky News. Lík ömmu hans var eitt af þeim sem fannst í kælinum hjá Bush.
Michaela Baldwins var sömuleiðis ósátt við Bush en lík stjúpföður hennar fannst í útfararstofunni. „Hann er skrímsli. Hann hefur enga samkennd, enga samúð, ekkert,“ sagði hún í samtali við Sky News.
Eftir útför stjúpföður hennar grínaðist fjölskyldan með að kistan hefði virst of lítil fyrir hann. Í dag trúir hún ekki að hann hafi verið í kistunni þegar útförin fór fram.+
„Hvaða aska er það sem við erum með? Hvað gerði hann við líkið? Hvað ætlaði hann að gera við það?“ spurði Baldwins.
Dómurinn
Bush var fundinn sekur um 67 ákæruatriði og var dæmdur í 20 ára fangelsi.