Pressan

Starfsfólk eBay ofsótti hjónin – Nú fá þau himinháar bætur

Mynd

Þetta hófst í byrjun árs 2019. Þá fóru hjónin David og Ina Steiner að fá sendingar með póstinum. Þau fengu til dæmis skordýr og blóðuga svínagrímu.

Hjónin gefa út fréttabréfið EcommerceBytes og þar skrifaði Ina neikvætt um netrisann eBay. Það fór greinilega illa í fyrirtækið því þáverandi forstjóri þess, Devin Wenig,  skrifaði til samskiptastjóra eBay: „Gerið út af við hana.“

Þetta kemur fram í málsgögnum dómstóls í Massachusetts í Bandaríkjunum. Jótlandspósturinn skýrir frá þessu og segir að það sem á eftir fylgdi sé vægast sagt undarlegt.

„Þetta var skelfilegt. Þetta var eins og Stephen King-martröð,“ sagði Ina í samtali við CBS sjónvarpsstöðina.

Skordýr og klámblöð

Starfsfólk eBay gerði síðan áætlun um hvernig ætti að herja á hjónin. Fundurinn var haldinn í gluggalausu herbergi á skrifstofum eBay í Kaliforníu.

Jim Baugh, þáverandi öryggisstjóri fyrirtækisins, gerði áætlunina ásamt öðrum liðsmönnum öryggisteymisins. Markmiðið var að fá hjónin til að breyta umfjöllun sinni um eBay og er óhætt að segja að undarlegar aðferðir hafi verið notaðar til þess.

Liðsmaður alríkislögreglunnar FBI lýsti atburðarásinni síðar sem „áður óséðu, miskunnarlausu og yfirdrifnu áreiti“.

Öryggisteymið byrjaði að skrifa gróf og ógnandi skilaboð til hjónanna á Twitter. Það skráði þau á rúmlega 53 tölvupóstaáskriftarlista, sendi þeim kakkalakka og köngulær með pósti, blóðuga grísagrímu, kistukrans og bók með titlinum: „Sorgardagbækur: Að lifa af makamissi.“

Teymið sendi nágrönnum hjónanna klámblöð en skráðu áskriftina á David Steiner. Auglýsing var sett á Craigslist, sem er bandarísk smáauglýsingasíða, þar sem sagði að hjónin væru að leita að bólfélögum og fylgdi heimilisfang hjónanna með.

Meðlimir öryggisteymisins flugu frá Kaliforníu til Massachusetts og úðuðu ógnandi skilaboðum á girðingu hjónanna og eltu þau þegar þau fóru eitthvað gangandi eða akandi. Einnig voru uppi fyrirætlanir um að setja staðsetningartæki i bíl hjónanna.

Þegar lögreglan í Massachusetts blandaðist í málið gerði öryggisteymið nýja áætlun og reyndi að hylja spor sín.

Háar bætur

Frá skrifstofum eBay í Kaliforníu reyndi öryggisteymið að afvegaleiða lögregluna. Falskt skjal var búið til þar sem hjónin voru sögð „grunsamleg“ til að láta líta út fyrir að þau hefðu haft í hótunum við eBay, ekki öfugt.

En þessi örvæntingarfulla tilraun bar ekki árangur.

Málið var tekið fyrir dóm sumarið 2020 og sjö starfsmenn eBay, þar af margir í stjórnunarstöðum, voru dæmdir í allt að 57 mánaða fangelsi.

Ári síðar höfðuðu hjónin einkamál gegn fjölda fyrrum starfsmanna eBay og eBay sjálfu.

Nýlega gerðu hjónin sátt við eBay. Í henni felst að fyrirtækið biðst afsökunar og játar að málið sé „ámælisvert“. Þess utan fá hjónin sem svarar til um 7,2 milljarða króna í bætur frá eBay og þremur fyrrum stjórnendum þess.