Marsbíllinn Curiosity er á ferð um Mars og sendir reglulega magnaðar myndir til jarðar. Nýlega sendi hann myndir sem sýna hluti sem vísindamenn geta ekki skýrt.
Í tilkynningu frá Bandarísku geimferðastofnuninni, NASA, kemur fram að Curiosity hafi nýlega hafið akstur upp dal sem heitir „Valle Grande“. Sendi bíllinn þá myndir af af marghyrningslaga jarðmyndunum sem eru um 4x8 cm að stærð.
Bíllinn hafði áður fundið svipaðar jarðmyndir en ekki í því umfangi sem er í Valle Grande.
Á 360 gráðu mynd, sem bíllinn tók, sjást þessar marghyrningslaga jarðmyndir eins langt og auga eygir í allar áttir.
Talsmaður NASA sagði að Curiosity hafi sent margar heillandi myndir til jarðar en þessar hafi gert vísindamenn orðlausa. Þeir viti ekki hvernig þetta hefur myndast en hafi nú mælt stærð þeirra og samsetningu nákvæmlega í von um að vísbendingar leynist í gögnunum um hvernig þetta myndaðist.