Lögreglumenn í Catford, sem er í suðurhluta Lundúna, komust heldur betur í feitt nýlega. Þeir stöðvuðu akstur 54 ára manns og leituðu í bíl hans. Þar fundu þeir innkaupapoka með 35.000 pundum í. Þetta svarar til tæplega 6 milljóna króna.
Maðurinn var því handtekinn vegna gruns um að peningarnir væru afrakstur af brotastarfsemi.
Næst lagði lögreglan leið sína heim til mannsins og þar fundust enn fleiri innkaupapokar með peningum í auk 1 kílós af fíkniefnum.
Í pokunum voru 4 milljónir punda en það svarar til um 666 milljóna króna!
Metro segir að samkvæmt því sem talsmaður lögreglunnar hafi sagt þá sé þetta ein hæsta upphæðin í reiðufé sem lögreglan hefur nokkru sinni lagt hald á.