Hitabylgjurnar, sem hafa herjað á Evrópu það sem af er ári, hafa kostað þúsundir álfubúa lífið. Umframdánartíðnin, það er að segja fjöldi andláta umfram það sem eðlilegt getur talist, hefur slegið öll met.
Þýsk yfirvöld segja að tæplega 10.000 manns hafi látist af völdum hitans sem fór upp í 40 gráður þegar mest var. Í mörgum öðrum löndum létust einnig margir af völdum hitans. Danska ríkisútvarpið segir að frá 22. júní til 26. júlí hafi 35.000 fleiri látist í Evrópu en vænta mátti miðað við árstímann. Er þetta byggt á tölum frá Eruomomo (European Mortality Monitoring) sem er sameiginlegt evrópskt eftirlitskerfi sem fylgist með og greinir dánartíðni í 27 aðildarríkjum ESB.
Flest dauðsföllin áttu sér stað í síðari helmingi júní þegar hitabylgjur skullu á álfunni, sérstaklega í Þýskalandi, Frakklandi og Belgíu.
Dauðsföllin í lok júní voru 25% fleiri en reiknað var með og er hitabylgjunum um að kenna að sögn sérfræðinga. Vitað er að dánartíðnin hækkar þegar hitabylgjur skella á álfunni og að það er eldra fólk og fólk með undirliggjandi sjúkdóma sem er í mestri hættu.