Pressan

265 pör gengu í hjónaband eftir að hafa nýtt sér nýjung frá japönsku ríkisstjórninni

Mynd
Frá Japan.

Fæðingartíðnin í Japan hefur lækkað 10 ár í röð og því reyna stjórnvöld að bregðast við með ýmsum aðgerðum. Ein þeirra er að ríkisstjórnin lét búa til gervigreindarstefnumótaapp í von um að það geti hjálpað til við að snúa þessari neikvæðu þróun við.

Nú hafa 265 pör gengið í hjónaband eftir að hafa kynnst í gegnum appið. Þetta kemur fram í opinberum gögnum sem voru gerð opinber í lok júlí.

Appið heitir „Tokyo Enmusubi“ og var sett í loftið í september 2024. Áður en það var gert hafði rannsókn leitt í ljós að 70% þeirra, sem vildu ganga í hjónaband, gerðu ekki neitt í málinu til að láta þenna draum sinn rætast.

Þess vegna lét ríkisstjórnin búa appið til. Nafnið „Tokyo Enmusubi“ þýðir „Tokýó hjónaband“ eða „Tókýó stefnumót“.

Notendur þess þurfa að sanna að þeir séu einhleypir og fara í viðtal. Með þessu er reynt að tryggja að aðeins fólk, sem vill ganga í hjónaband, skrái sig.

Í lok júní voru skráðir notendur 16.000 en 36.000 höfðu sótt um að fá að nota appið. 760 pör hafa hafið alvarleg ástarsamband eftir að hafa kynnst í gegnum appið.