Pressan

Gekk langa leið niður fjall með göngustaf fastan í síðunni - Of dýrt að kalla á þyrlu

Mynd
Göngustafurinn stakkst alveg í gegnum síðu Cifaldi en sem betur fer á heppilegum stað. Mynd skjáskot/Youtube.

Fjölmiðlar í Bandaríkjunum og víðar hafa fjallað mikið um nokkuð ótrúlegt atvik þar í landi þegar maður, sem var í fjallgöngu með vinum sínum, datt með þeim afleiðingum að göngustafur stakkst í gegnum vinstri síðu hans. Maðurinn ákvað samt að ganga niður fjallið með félögum sínum, að bíl eins þeirra, með göngustafinn fastan í síðunni. Leiðin var löng en maðurinn taldi sig ráða við hana og vildi ekki leggja út í þann kostnað sem hlytist af því að kalla til björgunarþyrlu.

Maðurinn heitir David Cifaldi og var ásamt tveimur vinum sínum að ganga á hæsta fjall Montana-ríkis, Granite Peak sem er 3.904 metra hátt. Það þykir í erfiðara lagi að ganga á fjallið ekki síst af því það þarf að fara langar og erfiðar leiðir til að komast að því en ein leiðin er að hluta tul yfir hina torfæru Froze to Death Plateau, sem kalla mætti á íslensku Fraus til dauða-hásléttan. Veðurfar á svæðinu er einnig válynt. Árið 2019 lést maður sem var að ganga á fjallið með syni sínu, eftir 45 metra fall.

Mynd

David Cifaldi ber sig vel eftir þessa þolraun. Mynd: Skjáskot/Youtube.

Slapp vel

Vinirnir fóru í gönguna fyrir 10 dögum, þann 20. júlí. Þegar Cifaldi datt stakkst 112 sentímetra langur göngustafurinn í gegnum vinstri síðu hans.

Það slapp hins vegar til að stafurinn færi í gegnum einhver líffæri og hann var allan tímann með fullri meðvitund, það blæddi ekki mikið úr sárunum og sársaukinn var ekki mikill. Félagarnir ræddu málið og ákváðu í ljósi stöðunnar og þess hversu dýrt það væri að kalla til björgunarþyrlu að ganga til baka.

Það hjálpaði Cifaldi, að meta aðstæður, að hann er hjúkrunarfræðingur og hann tjáði vinum sínum að þar sem stafurinn hefði farið í gegn svo utarlega væri þetta í raun bara smáskeina. Þeir höfðu samband við yfirvöld á svæðinu, í gegnum gervihnattatæki, og tilkynntu hvað hafði gerst og að þeir myndu sjálfir sjá um að koma Cifaldi undir læknishendur. Þeir voru þó í reglulegu sambandi við neyðarverði á leiðinni og yfirmaður björgunarsveitarinnar á svæðinu vissi af þeim.

Löng leið

Félagarnir gengu síðan 1.500 metra leið niður af fjallinu og síðan alls 16 kílómetra þar til þeir komu að bíl vinar Cifaldi. Var gangan torfær framan af og þurftu félagarnir að ganga yfir m.a. grjót, snjó og þykkan gróður.

Vinur Cifaldi, Jessie Ross, segir að þetta hefði vart verið mögulegt nema fyrir þá miklu trú sem Cifaldi hefði haft á að þetta tækist. Það hefði þar að auki ekki verið annað hægt en að fara eftir því sem hann heilbrigðismenntaður maðurinn sagði.

Þeir keyrðu síðan á næstu heilsugæslustöð en voru sendir þaðan á sjúkrahúsið þar sem Cifaldi vinnur. Þar var stafurinn fjarlægður úr líkama hans, gert að sárunum og engin þörf talin á skurðaðgerð. Hann sneri aftur til vinnu innan fárra daga og segir að kæmu sömu aðstæður upp aftur myndi hann taka nákvæmlega sömu ákvörðun. Hann segist öllum sem hjálpuðu honum þakklátur en ekki síður fyrir það að stafurinn hafi ekki stungist eilítið lengra til hægri inn í líkama hans því þá hefði þessa saga mögulega hafa getað endað verr.