Lögregla í Grikklandi hefur ráðist í umfangsmikla morðrannsókn, sem þegar hefur teygt anga sína til nokkurra landa, eftir að lík breskrar konu fannst í ferðatösku í miðborg Aþenu, ekki langt frá hinni sögufrægu Akrópólishæð. Lögreglumaður segir málið bæði óhugnanlegt og fáheyrt.
Fjallað hefur verið um málið í bæði grískum og breskum fjölmiðlum.
Heimilislaus maður fann líkið í yfirgefnu húsnæði í borgarhlutanum Kypseli sem er um 4 kílómetra norður af Akrópólishæð. Á hæðinni er eins og kunnugt er þó nokkuð af ævafornum sögufrægum mannvirkjum sem jafnan eru talin til ómetanlegra menningarverðmæta, ekki eingöngu fyrir grísku þjóðina heldur heimsbyggðina alla. Einna frægast þeirra er Meyjarhofið sem er einmitt helgað gyðjunni Aþenu, verndara borgarinnar, en hofið var byggt á 5. öld f. Kr.
Heimilislausi maðurinn var í húsnæðinu þann 18. júlí síðastliðinn þegar hann kom auga á ferðatöskuna og sá það sem virtist vera útlimur manneskju, standa út úr henni. Hann afréð að koma ekki nær töskunni og kallaði til lögreglu.
Líkið var af konu sem var um 1,62 metrar á hæð og með rauðleitt hár sem var bundið í tagl. Hún var klædd í stuttbuxur og bol en stuttbuxurnar voru merktar frönskum háskóla og þar af leiðandi var alþjóðalögreglunni, Interpol, tilkynnt um málið. Við fyrstu skoðun sáust engir augljósir á áverkar á líkinu eða önnur merki um átök.
Bandaríkin
Konan var ekki með nein skilríki á sér og í því skyni að bera kennsl á hana voru fingraför hennar könnuð. Þau voru ekki skráð í kerfum grísku lögreglunnar en reyndust hins vegar á skrá í Bandaríkjunum.
Í kjölfarið kom í ljós, með aðstoð Interpol og löggæsluyfirvalda í Bandaríkjunum, að konan var 38 ára gömul og frá Bretlandi, nánar til tekið Skotlandi. Hún hét Elisabeth Jane Ross.
Elizabeth Jane Ross. Mynd: Skjáskot/Facebook.
Lögreglan hefur komist að því að Ross kom til Grikklands 29. júní síðastliðinn frá Bandaríkjunum með viðkomu á Kýpur.
Hún mun hafa verið að heimsækja vinafólk sitt í Grikklandi. Ross sást síðast á lífi þann 15. júlí þremur dögum áður en lík hennar fannst. Gríska lögreglan hefur tjáð fjölmiðlum að farsími Ross hafi verið notaður eftir lát hennar og raunar allt þar til greint var opinberlega frá því að hún væri sú sem fannst látin í ferðatöskunni. Skilaboð hafi verið send úr símanum bersýnilega til að telja þeim sem fengu skilaboðin send trú um að hún væri enn lifandi.
Til rannsóknar er hvort hún ferðaðist með einhverjum til Grikklands og hvar hún gisti áður en hún lést. Krufning á líki Ross á eftir að fara fram.
Bresk yfirvöld hafa verið látin vita af dauða Ross og eru í sambandi við fjölskyldu hennar í Skotlandi. Gríska lögreglan hefur fengið aðstoð frá lögreglu í bæði Skotlandi og á Kýpur við rannsóknina. Óskað hefur verið eftir því að rannsóknarlögreglumenn sem annast rannsóknina fái að ræða við föður Ross til að reyna að fá frekari upplýsingar um hvað hún tók sér fyrir hendur áður en hún lést.
Grískur lögreglumaður tjáði The Sun að lögreglu þar í landi þætti málið afar óhugnanlegt og það væri einsdæmi:
„Að finna erlendan ríkisborgara látinn í ferðatösku hér í hjarta Aþenu hefur ekki gerst áður. Þetta mál er fordæmalaust í sögu samskipta Grikklands og Bretlands.“