Pressan

Gerðu ítarlega erfðagreiningu á Torínó-líkklæðinu – Niðurstöðurnar komu á óvart

Mynd
Líkklæðin eru nú geymd í Torínó á Ítalíu, eru þau kennd við borgina. Afstaða kaþólsku kirkjunnar er hlutlaus, er fólki frjálst að trúa að þetta séu líkklæði frelsarans. Mynd/Getty

Vísindamenn hafa gert enn ítarlegri rannsókn á Torínó-líkklæðinu fræga, nú með því að greina í þaula DNA-sýni. Fyrir þá sem ekki þekkja til er líkklæðið einn þekktasti helgidómur í kristinni trú og kann að sýna Jesú Krist skömmu eftir að hann var krossfestur. Líkklæðisins er þó ekki getið í heimildum fyrr en á 14. öld en það sem er áhugaverðast við það er að enginn veit í raun hvernig það var búið til. 

Í umfjöllun Sigurðar Ægissonar guð- og þjóðfræðings á Vísindavefnum er farið yfir sögu líkklæðisins, hvernig það varð miðdepill athygli pílagríma á miðöldum, þegar það skemmdist í eldi á 16. öld og þegar það vakti enn meiri athygli þegar það var loks ljósmyndað í lok 19. aldar og negatívan sýni mun skýrari mynd af andliti ef áður.

Mynd
Líkklæðið vakti mikla athygli þegar það var ljósmyndað í lok 19.aldar þegar þetta blasti við á negatívunni.

„Ef hratt er farið yfir sögu benti kolefnistrefjarannsókn, sem gerð var á Tórínó-klæðinu árið 1979 og síðan aftur 1988, þó til þess að um svik væri að ræða. Vísindamenn frá þremur háskólum komust að þeirri niðurstöðu að það væri frá árabilinu 1260-1390,“ segir í umfjöllun Sigurðar.

„Árið 2002 lét páfastóll gera við plaggið og með því gafst tækifæri að mynda það að innanverðu í fyrsta sinn og taka ný efnissýnishorn. Kom í ljós að klæðið er mun eldra en fyrri rannsóknir höfðu bent til, eða 1300-3000 ára gamalt. Mun sýni úr fyrri rannsóknum hafa verið tekið úr bót, sem ofin var inn í klæðið á miðöldum, eftir brunann sem áður er minnst á.“

Þá hefur einnig verið bent á að á líkklæðinu hafi fundist frjókorn sem ættuð eru frá Austurlöndum nær en eru ekki til í Evrópu.

Ítarleg greining á DNA

Nú hefur verið birt enn ein rannsóknin, nú í Scientific Reports, þar sem notast er við sýni sem var tekið af klæðinu árið 1978 og gerð á því ítarleg DNA greining.

Í ljós kemur við erfðagreininguna að klæðið er þakið matarleifum, erfðaefni úr dýrum og fólki frá öllum heimsálfum.

Við greininguna kom í ljós erfðaefni frá fjórtán einstaklingum, þar á meðal vísindamanninum sem tók sýnið af klæðinu á áttunda áratugnum. Nokkrir einstaklingar frá Evrópu, Miðausturlöndum en stærsti hlutinn, 40%, kemur frá fólki sem á ættir að rekja til Indlands. 

Rennir það stoðum undir eina kenninguna um líkklæðið, að það hafi komið frá Indusdal áður en það rataði til Evrópu á miðöldum.

Þá fannst erfðaefni úr hundum, köttum, svínum, hænum, kúm, kanínum, hestum og skelfiski. Einnig var að finna örsmáar leifar af mat, gulrótum, tómötum, gúrkum, melónum, kartöflum, pipar, bönunum, jarðhnetum, hveiti og maís, einnig rauðum kóral úr Miðjarðarhafinu. Mikið af húðbakteríum fundust líka. 

Niðurstöðurnar eru þær sömu og áður, engar haldbærar sannanir eru fyrir því hvort líkklæðið sé tvöþúsund ára gamalt eða mun yngra. Benda niðurstöðurnar einungis til að líkklæðið hafi verið varðveitt og vakið athygli um langan tíma.