Bros getur fljótt misst svolítið af glampanum, meira að segja þótt tannburstinn sé notaður kvölds og morgna. Margir halda að það sé nóg að tannbursta sig til að halda tönnunum hvítum en það er nú ekki svo því mörg ósköp venjuleg og algeng matvæli geta hægt og rólega gert tennurnar gular.
Ladbible hefur eftir sérfræðingum á þessu sviði að eftirtalin matvæli geti gert tennurnar mislitar með tímanum.
Dökk ber á borð við bláber, hindber og brómber innihalda mikið af andoxunarefnum og eru því meinholl. En sá galli er á gjöf Njarðar að sterki liturinn í þeim getur sest á tennurnar. Sérfræðingarnir mæla með því að munnurinn sé skolaður með vatni eftir neyslu til að minnka hættuna á mislitun.
Rauðvín hefur lengi haft orð á sér fyrir að gera tennur mislitar en hvítvín getur líka verið sökudólgur í þessum efnum. Sýran í víninu getur nefnilega haft áhrif á glerunginn og gert tennurnar móttækilegri fyrir blettum.
Tómatsósa getur einnig gert tennur gular með tímanum. Blanda af sterkum litarefnum og kryddum geta sett mark sitt á brosið.
Gosdrykkir eru þekktir fyrir að vera slæmir fyrir tennurnar vegna sykursins. En maður er ekki hólpinn þótt maður drekki sykurlausa gosdrykki því sýran í þeim getur gert tennurnar mislitar.
Þegar glerungurinn slitnar, verður dentínlagið undir honum sýnilegra. Það er gulleitara á litinn og þess vegna geta tennurnar virst dekkri með aldrinum.
Svo bentu sérfræðingarnir auðvitað á það augljósasta af öllu, reykingar, aldur og slæma tannhirðu. Allt leikur þetta stórt hlutverk þegar kemur að því að tennurnar verði mislitar.