Ætlar þú til Suður-Evrópu í frí? Þá skaltu lesa áfram til að fræðast um hinar ýmsu reglur sem gilda á ferðamannastöðum þar. Við brotum á sumum þeirra liggja háar sektir.
Blick segir að hugguleg strandferð eða sandkastali geti orðið fólki dýrkeypt ef það fylgir ekki reglunum.
Á einkaströndum í Apulien-héraðinu er bannað að hafa mat og drykk meðferðis. Samtök strandeigenda segja þetta vegna mikils og vaxandi vanda með sorp og hreinlæti á ströndunum. En sumir telja að þetta sé aðeins yfirvarp því með þessu sé beinlínis verið að neyða strandgesti til að kaupa mat og drykk á strandbörunum.
Í Varenna, sem er nærri Kómóvatni á Ítalíu, er bannað að ganga um í sundfötum og ber að ofan. Þetta hefur verið bannað síðan í lok júní. Brot á þessum reglum getur kostað ferðamenn allt að 200 evrur í sekt. Strendur og hafnir eru þó undanþegnar þessari reglu.
Svipað bann er í bænum Santa Marherita á Ítalíu og Les Sables-d‘Olonne í Frakklandi.
Á spænsku ferðamanneyjunni Tenerife er bannað að byggja sandkastala. Þetta er öryggisráðstöfun sem á koma í veg fyrir að fólk detti um þá eða í. Sömu reglur eru í gildi í Eraclea á Norður-Ítalíu. Allt að 1.000 evru sekt liggur við brotum á sandkastalareglunum.
Í Lepe, sem er við suðvesturströnd Spánar, er bannað að pissa í sjóinn og hefur verið það síðan 2012. Ef fólk ræður ekki við sig og pissar samt í sjóinn getur það kostað allt að 750 evrur í sekt.