Pressan

Sérfræðingur um Trump – „Er hættur“

Mynd
Donald Trump. Mynd/Getty

Merkin eru greinileg hjá Donald Trump. Helstu baráttumál hans, sem tryggðu honum forsetaembættið, verða sífellt fyrirferðarminni hjá honum. Þetta eru verðbólgan, matvæla- og bensínverð og fjárhagsstaða hins almenna borgara.

Svíinn Andreas Utterström, sem er sérfræðingur í bandarískum málefnum, sagðist í samtali við TV4 ekki vera í neinum vafa um hvernig á að túlka þetta:

„Ég sé þetta sem sönnun þess að hann sé hættur og hafi eiginlega ekki áhyggjur af neinu öðru en eftirmæli sínu og að græða eins mikla peninga og hægt er.“

Að undanförnu hafa flestar tilkynningar Trump snúist um stríðið við Íran og mismunandi minnismerki sem hann vill reisa og gera við víðs vegar í höfuðborginni Washington D.C.

Hann tróð sér líka í aðalhlutverkið þegar Bandaríkin fögnuðu 250 ára afmæli sínu og á sama tíma var skýrt frá því hversu marga milljarða Trump þénaði á til dæmis rafmyntum síðasta árið.

Allt þetta hefur gert að verkum að vinsældir hans meðal bandarísku þjóðarinnar hafa snarminnkað en það virðist ekki hafa nein áhrif á hann.

„Pólitískur ferill hans er á enda. Hvaða máli skiptir þá að stuðningurinn minnkar á meðan bankabókin tútnar út,“ sagði Utterström og vísaði þarna til þess að einstaklingur getur aðeins gegnt forsetaembættinu í tvö kjörtímabil.

„Það skiptir hann engu máli þótt kjósendur missi trú á honum. Maður finnur nályktina yfir pólitískum ferli hans, svo ég held að þetta skipti ekki neinu máli,“ sagði Utterström einnig.