Pressan

Sérfræðingur spáir Pútín dökkri framtíð – „Hann mun stökkva út um glugga“

Mynd
Vladímír Pútín, Rússlandsforseti. Mynd/Getty

Þegar þjóð fer í stríð mun hinn mikli kostnaður, sem fylgir stríðinu, að lokum lenda á ríkasta fólkinu. Fólkið, sem fjármagnar stríðsvélina, byrjar oft að spyrja spurninga þegar hagnaðurinn fer þverrandi.

Nú finnur Vladímír Pútín hugsanlega fyrir slíkum þrýstingi frá fólkinu í innsta hring hans.

Stemmningin meðal rússnesks kaupsýslufólks hefur breyst mikið að undanförnu. Fyrir tólf mánuðum spáðu margir af ríkustu og áhrifamestu olígörkum landsins skjótum og afgerandi sigri í stríðinu í Úkraínu.

En nú hefur þetta breyst. Hinn mikli efnahagslegi kostnaður og annar kostnaður við stríðsreksturinn er nú farinn að hafa áhrif á rússnesku elítuna.

Margus Tsakhna, utanríkisráðherra Eistlands, ræddi nýlega við þýska dagblaðið RND og deildi þar skoðunum sínum varðandi þessa breytingu.

Hann sagði að elítan sé nú orðin full efasemda um stríðið og að vaxandi þrýstingur frá elítunni geti neytt Pútín til að endurhugsa heildaráætlun sína.

Tsahkna dró upp tvær sviðsmyndir fyrir Pútín. Önnur er að Pútín efni hugsanlega til alvarlegra friðarviðræðna en það krefst þess að hann velji að láta skynsemina ráða för.

Hin sviðsmyndin er öllu dekkri fyrir Pútín: „Það er jafn líklegt að hann stökkvi út um glugga ásamt fjölskyldu sinni. Svoleiðis hlutir gerast nú í Rússlandi,“ sagði ráðherrann.

Stór ástæða fyrir paník elítunnar eru hið mikla og viðvarandi tjón sem Úkraínumenn hafa valdið á orkuinnviðum landsins með drónaárásum sínum. Hafa þeir ráðist nær daglega á mikilvæga orkuinnviði og er nú svo komið að eldsneytisskortur er í Rússlandi.