Pressan

Segir þetta vera það sem Pútín óttast mest – Ekki ósigur í Úkraínu

Mynd
Vladímír Pútín er sagður óttast ákveðna hluti. Mynd: EPA

Stríðið í Úkraínu hefur nú staðið í vel á fimmta ár og ekki að sjá að því muni ljúka á næstunni. Úkraínumenn verjast sem fyrr af mikilli hörku og Vladímír Pútín sendir tugi þúsunda landa sinna út í opinn dauðann á vígvellinum í hverjum mánuði.

Úkraínumenn hafa sett sér það markmið að fella 30.000 rússneska hermenn í mánuði og virðist þeim hafa tekist það á síðustu mánuðum. Þeir hafa einnig gert fjölmargar árásir á olíuhreinsistöðvar og innviði víða í Rússlandi og er nú svo komið að þetta mikla olíuframleiðsluríki glímir við eldsneytisskort.

En fólk veltir auðvitað vöngum yfir hvenær stríðinu muni ljúka og hvort það verði með sigri Rússa eða hvort Úkraínumönnum muni takast að endurheimta hernumin landsvæði og hrekja Rússa aftur til síns heima. Svo er auðvitað sá möguleiki að samið verði um stríðslok miðað við stöðu víglínanna á þeim tímapunkti.

Hernaðartaktík eða viðræður diplómata eru yfirleitt það sem kemur einna mest við sögu þegar kemur að því að binda enda á stríð.

Bill Browder, sem hefur ítrekað gagnrýnt Pútín, segir að ástæðan fyrir því að ekki hafi verið bundinn endi á stríðið sé að Pútín hafi í sjálfu sér ekki svo miklar áhyggjur af Úkraínu, það séu eftirmálar firðarsamkomulags sem hræði hann.

Browder var áður forstjóri fjárfestingarfyrirtækisins Hermitage Capital Managament í Rússlandi og þekkir vel til rússneskra málaefna. Hann telur að stríðið snúist aðallega um pólitíska tilvist Pútíns.

Eftir að hafa komið upp um útbreidda spillingu í Rússlandi 2005 var Browder meinað að koma aftur inn í landið og hefur síðan verið einn af hörðustu andstæðingum Pútíns og stjórnar hans.

Í samtali við The Independent sagði hann að samkomulag um að binda enda á stríðið geti verið mun hættulegra fyrir Pútín en sjálft stríðið.

„Ef hann semur um frið, þá missir hann völdin. Ef hann missir völdin, þá verður hann hengdur í ljósastaur,“ sagði Browder.

Hann sagði að stríðið snúist í sjálfu sér ekki um að vernda rússnesku þjóðina eða endurheimta söguleg landsvæði, heldur eingöngu um að tryggja Pútín áfram völdin.

Hann sagði einnig að Pútín og nánasta samstarfsfólk hans hafi stolið um einum biljarði dollara frá rússneska ríkinu.