Pressan

Ný rannsókn – Lífsstílsbreytingar minnka hættuna á sykursýki um 31%

Mynd
Það er hægt að minnka líkurnar á að fá sykursýki 2. Mynd: Getty Images

Vísindamenn við Universidad de Navarra á Spáni rannsökuðu tæplega 5.000 manns á aldrinum 55 til 75 ára. Allir voru þátttakendurnir í ofþyngd eða með efnaskiptaeinkenni en enginn þeirra var með sykursýki við upphaf rannsóknarinnar.

Í rannsókninni, sem hefur verið birt í vísindaritinu Annals of Internal Medicine, kemur fram að þátttakendunum hafi verið skipt í tvo hópa. Annar hélt sig við Miðjarðarhafsmataræðið en hinn hélt sig einnig við það en innbyrti færri hitaeiningar, hreyfði sig meira og fékk aðstoð heilbrigðisstarfsfólks við að léttast.

Vaxandi vandamál

Sykursýki 2 er einn algengasti sjúkdómurinn á heimsvísu. Science Daily segir að rúmlega 530 milljónir manna séu með sykursýki 2.

Vísindamenn benda á að kyrrseta, óhollt mataræði og sífellt fleiri í ofþyngd geri að verkum að tilfellum sjúkdómsins fari fjölgandi.

Temple University segir að það geti verið erfitt fyrir marga að fá aðgang að hollum mat og stunda hreyfingu.

Greinileg áhrif

Eftir sex ár var greinilegur munur á hópunum. Hópurinn sem hélt sig við Miðjarðarhafsmataræðið í bland við hreyfingu og færri hitaeiningar, var í minni hættu á að fá sykursýki 2 og var munurinn 31%.

Fólkið í þessum hópi léttist einnig meira og mittismál þess minnkaði meira en hjá fólkinu í hinum hópnum.

Það er því mat vísindamanna að hófsamar lífsstílsbreytingar geti gegnt mikilvægu hlutverki við að koma í veg fyrir sykursýki 2.