Samkvæmt því sem Daniel Ibsen, næringarfræðingur við Steno sykursýkismiðstöð Árósa og Árósaháskóla, segir þá sýna rannsóknir að sum af þeim efnum sem eru í berjum geti haft jákvæð áhrif á meðal annars blóðþrýstinginn, blóðsykurinn og líkurnar á hjarta- og æðasjúkdómum.
Ber innihalda vítamín en einnig plöntuefni sem kallast pólýfenól. Ibsen benti á að allt grænmeti og ávextir séu holl en að ber séu öðruvísi vegna þess hversu mikið þau innihaldi af pólýfenólum.
Danska ríkisútvarpið segir að ekki innihaldi allar berjategundir sama magn af hinum gagnlegum efnum. Dökk ber á borð við sólber, brómber og norræn bláber innihalda sérstaklega mikið af antósýaníni, sem er náttúrulegt litarefni.
Rannsóknir hafa sýnt að geymsla og flutningur á berjum getur haft áhrif á magn pólýfenóla en ekki liggja fyrir skýrar niðurstöður um hvaða áhrif þetta hefur á heilsufarið.
Stærð berjanna getur einnig skipt máli. Mörg af góðu efnunum eru í ysta lagi þeirra og því fær maður meira af þeim ef maður borðar stór ber frekar en lítil.
Ibsen sagði í samtali við Danska ríkisútvarpið að ber séu meðal hollustu ávaxtanna sem maður getur borðað.