Fyrir um ári síðan endaði mynd, sem var tekin með svokallaðri „kiscam“ (kossamyndavél) á tónleikum Coldplay, á forsíðum fjölmiðla um allan heim. Myndinni var síðan deilt í gríð og erg á samfélagsmiðlum því myndin kom upp um framhjáhald og virtist fólk almennt hafa gríðarlegan áhuga á málinu.
Konan á myndinni heitir Kristin Cabot og nýlega ræddi hún við Boston Globe um málið sem umturnaði lífi hennar algjörlega.
Tónleikarnir fóru fram í Massaschusetts í Bandaríkjunum í júlí á síðasta ári og þar sá Kristin sjálfa sig skyndilega á stórskjá. Fyrir aftan hana stóð þáverandi yfirmaður hennar og hélt utan um hana.
Þegar parið áttaði sig á að þau voru á stórskjánum reyndu þau að fela sig fyrir myndavélinni. „Annað hvort eru þau að halda framhjá eða þá eru þau bara mjög feimin,“ sagði Chris Martin, söngvari Coldplay, við tónleikagesti.
Það dró ekki úr áhuga fólks á málinu að maðurinn á myndinni var Andy Byron, forstjóri tæknifyrirtækisins Astronomers, sem var kvæntur.
Í upphafi var því einnig haldið fram að Kristin, sem var starfsmannastjóri fyrirtækisins, væri gift. Síðar kom fram að hún var skilin að borði og sæng við mann sinn en þau eiga tvö börn saman. Hún sagðist hafa haldið að Byron hafi einnig verið skilinn að borði og sæng.
Þegar málið var í hámæli fékk Kristen fjölda hatursskilaboð og ljósmyndarar sátu um heimili hennar. Henni bárust einnig morðhótanir.
„Ég er enn í rusli en mér líður betur en áður. Ég dró mig inn í mig sjálfa og það líkar mér ekki. Það er ekki ég. En ég mun örugglega jafna mig,“ sagði hún í samtali við Boston Globe.
Bæði Kristin og Byron hættu störfum hjá Astronomer í kjölfar málsins. Kristin hefur verið atvinnulaus síðan.
Hún sagðist vita að hún hafi tekið „mjög slæma ákvörðun“ á síðasta ári. „Ég neita því ekki og ég reyni ekki að verja mig. En það á ekki að drepa mann fyrir það,“ sagði hún og vísaði þar til morðhótananna sem henni hafa borist.