Pressan

Mannkynið dó næstum út fyrir 70.000 árum

Mynd
Mynd úr safni.

Um 70.000 fyrir krist gaus eldfjallið Toba á Súmötru í núverandi Indónesíu. Þetta er stærsta þekkta eldgosið sem vitað er um.

Með gosinu fylgdi um sex sentimetra þykkt öskulag, enn er hægt að sjá þetta öskulag á landi, yfir alla Suður-Asíu, Indlandshaf, Arabíuhaf og Suður-Kína haf.

Í umfjöllun NPR kemur fram að á eldgosamælikvarða sé þetta gos „8“ sem þýðir að það var risavaxið og tveimur stigum stærra en stærsta gosið á sögulegum tíma en það var í Mount Tambora í Indónesíu. Það gos gerði að verkum að árið 1816 var ekkert sumar á norðurhveli jarðar.

Gosið í Toba varð til þess að lítið sást til sólar í sex ár, árstíðabundnar rigningar fóru úr skorðum og ár hættu að streyma. Svo má ekki gleyma öskunni sem lagðist yfir og drap það sem lenti undir henni.

Forfeður okkar áttu erfitt með að finna fæðu og líklegt er talið að fólk, sem bjó í Afríku, hafi átt erfitt með að finna villibráð og að stór hluti mannfjöldans hafi dáið.

Jörðin var köld fyrir þegar gosið hófst og það varð til þess að hún kólnaði enn frekar vegna öskunnar og ryksins sem endurköstuðu sólarljósinu út í geim. Meðalhitinn lækkaði um rúmlega 20 gráður sums staðar.

Þetta var því erfiður tími fyrir forfeður okkar en sem betur fer tókst þeim að þreyja þorrann og það tryggði að við erum hér í dag.