Pressan

JD Vance með óvænta játningu varðandi Epstein – „Við klúðruðum þessu algjörlega“

Mynd
Jeffrey Epstein

Umræðan um hvernig stjórn Donald Trump hefur farið með Epstein-skjölin kyndir hressilega undir pólitískri umræðu í Bandaríkjunum. Nýlega ræddi JD Vance, varaforseti, um málið í hlaðvarpinu The Joe Rogan Experience og kom með óvænta játningu.

Hann játaði að stjórn Trump hafi gert mikil mistök þegar kom að því að útskýra fyrir fólki af hverju skjölin voru meðhöndluð á þann hátt sem gert var. Hann staðhæfði einnig að ekki hafi verið reynt á meðvitaðan hátt að leyna sönnunargögnum.

Í viðtalinu, sem var langt, sagði Vance að stjórnin hefði átt að opinbera öll skjöl tengd Epstein-málinu strax í upphafi í staðinn fyrir að láta rugling myndast.

„Við klúðruðum algjörlega samskiptunum í tengslum við Epstein-skjölin. Þannig er það bara, við gerðum það bara. En held ég að ástæðan fyrir því að við klúðruðum samskiptunum sé af því að við reyndum að leyna einhverju? Nei,“ sagði hann.

Hann sagði að samskiptavandann eigi ekki að túlka sem sönnun fyrir því að reynt hafi verið að leyna einhverju.

Hann varði einnig Pam Bondi, fyrrverandi dómsmálaráðherra, sem var harðlega gagnrýnd að hafa birt skjöl sem höfðu verið flokkuð í „The Epstein Files: Phase 1“ og „Declassified“. Mörg af þessum skjölum voru þá þegar öllum aðgengileg og varð þetta til þess að margir gagnrýndu stjórn Trump og sögðu hana reyna að ofselja hvað hefði verið gert opinbert.

„Ég þekki Pam. Mér líkar vel við Pam. Ég held ekki að neitt illt hafi búið að baki. Ég held að Pam hafi reynt að bregðast við hinni pólitísku stöðu á því augnabliki. Ég held að hún hafi ýkt hvaða skjöl við vorum með og hvað við vorum ekki með,“ sagði hann.

Þetta olli mikilli óánægju hjá mörgum stuðningsmönnum Donald Trump, sérstaklega af því að gagnsæi varðandi Epstein-skjölin var eitt af kosningaloforðum hans.

Gagnrýnin hefur ekki minnkað síðan. Dómsmálaráðuneytið seinkaði ítrekað að opinbera fleiri skjöl þar til þingið samþykkti lög sem neyddu stjórnina til að gera skjöl, sem tengdust rannsóknum alríkisins á málefnum Epstein, opinber.