Pressan

Innanbúðarmenn í Kreml segja að Pútín muni væntanlega stigmagna stríðsreksturinn

Mynd
Hvað gerir Pútín? Mynd:EPA/Sputnik

Eftir því sem heimildarmenn, sem standa Vladímír Pútín nærri, segja þá heldur Pútín fast í það markmið sitt að leggja allt Donbas-héraðið undir sig og að reikna megi með að hann muni stigmagna stríðsreksturinn í Úkraínu.

Þetta segja þrír heimildarmenn í Kreml. Eru þeir allir í nánum tengslum við forsetann og aðra helstu ráðamenn landsins. Reuters skýrir frá þessu.

Heimildarmennirnir segja að drónaárásir Úkraínumanna á olíuhreinsistöðvar og hafnir hafi gert að verkum að Pútín sé staðráðnari en nokkru sinni áður að halda stríðsrekstrinum áfram.

Tveir af heimildarmönnunum sögðu að mjög líklega muni Pútín herða stríðsreksturinn. Annar þeirra, sem hittir Pútín reglulega, sagði að „miklar líkur“ á stigmögnun á næstu mánuðum.

Pútín er sagður vera algjörlega staðráðinn í að ná öllu Donbas-héraðinu úr höndum Úkraínumanna. Hann er sagður hafa sett ofan í við hóp ráðgjafa nýlega þegar þeir lögðu til að samið yrði um vopnahlé miðað við núverandi víglínu.