Við erum með góðar fréttir og slæmar fréttir og byrjum á þeim slæmu fyrst – Mannkynið mun deyja út.
Það er umdeild og vinsæl kenning sem segir að við séum nær því að deyja út en að við séum á byrjunarstiginu.
Góðu fréttirnar eru hins vegar að samkvæmt kenningunni eigum við um 17.100 ár eftir! Hjúkk!
Þessi tala kemur frá hinni svokölluðu „Dómsdagsröksemdafærslu“ en það er tölfræðileg hugmynd sem stjarneðlisfræðingurinn Brandon Carter setti fram 1983.
Þessi kenning, hugmynd eða hvað maður vill kalla þetta, reynir ekki að spá nákvæmlega fyrir um hvaða atburður muni eða geti gert út af við mannkynið. Það er bara stærðfræði sem bendir til að tími tegundarinnar okkar muni renna sitt skeið á enda.
Kenningin byggist á svolitlu sem er kallað „Kópernikusarreglan“ en hún gengur út á að mannkynið eigi sé enga sérstaka stöðu í alheiminum eða sögunni.
Í einföldu máli segir kenningin að við eigum ekki að ganga út frá því að við séum óvenjulega snemma eða seint á þeim tíma sem mannkynið hefur til ráðstöfunar.
Í kenningunni er staða manneskjunnar í allri röð þeirra manna sem hafa nokkru sinni lifað notuð. Þetta gefur vísbendingu um hversu margt fólk muni fylgja á eftir viðkomandi.
Vísindamenn gengu út frá því í upphafi að um 117 milljarðar manna hafi lifað síðan mannkynið kom fram á sjónarsviðið.
Þeir telja að það séu um 95% líkur á að við séum ekki meðal fyrstu 5% allra manna sem munu nokkru sinni verða til.
Út frá þessu sýna útreikningar að heildarfjöldi fólks, sem mun fæðast, muni líklega ekki verða meiri en 2,34 billjónir. Þessi tala fæst með því að margfalda fjölda þeirra manna sem hafa lifað með 20 og er þá gengið út frá því að við séum ekki uppi óvenjulega snemma á lífsleið mannkynsins.
Miðað við fæðingartíðnina í dag, þá næst þessi mannfjöldi eftir um 17.100 ár eða árið 19.126.
Útreikningarnir spá því ekki að mannkynið muni örugglega hverfa af sjónarsviðinu á þessum tímapunkti eða að útrýming þess sé líkleg vegna einhverrar sérstakrar ógnar.
Kenningin færir rök fyrir því að það séu 95% líkur á að mannkynið deyi út áður en við náum að hafa verið 2,34 billjónir einstaklinga frá upphafi.