Pressan

Grunaður um að hafa geymt lík eiginkonunnar í sófanum mánuðum saman

Mynd
John Emrich. Mynd:Lögreglan

John Emrich, sem er 59 ára, hefur verið ákærður fyrir vanvirðandi meðferð á líki eiginkonu sinnar. Er hann sakaður um að hafa geymt lík eiginkonunnar, sem hét Veronica Emrich og var 61 árs, í sófanum á heimili þeirra mánuðum saman. Er hann sagður hafa notað mýkingarefni til að takast á við rotnunarlyktina.

Emrich var handtekinn í júní eftir að lík Veronica fannst á heimili þeirra.

Lögreglan telur að Veronica hafi látist í febrúar síðastliðnum af eðlilegum orsökum.

Daily Mail segir að Emrich hafi síðan geymt líkið í stofusófanum.

John Ward, lögreglustjóri, sagði að líkið hafi fundist þegar lögreglan kannaði aðstæður á heimilinu eftir að áhyggjum hafði verið lýst af ástandinu þar eftir að ættingjar höfðu ekki náð sambandi við Veronica mánuðum saman.

Lögreglan segir að Emrich hafi sagt að hann hafi ekki tilkynnt um andlátið því hann hafi verið svo illa haldinn af sorg því hann hafi ekki „viljað vera án hennar“ og gæti ekki afborið að missa hana.