Gervisætuefni eru sett í margar sykurlausar neysluvörur, bæði mat og drykk. Árum saman hafa sykurlausar vörur, með sætuefni, verið taldar hollara val því þær bjóða upp á sætt bragð án margra hitaeininga.
Ný rannsókn, sem hefur verið birt í vísindaritinu Current Atherosclerosis Reports, sýnir að það er hugsanlega ástæða til að rannsaka áhrif gervisætuefna betur. HealthDay skýrir frá þessu.
Vísindamennirnir fóru í gegnum 21 klíníska rannsókn þar sem gervisætuefni voru borin saman við vatn eða lyfleysu.
Með þessu gátu þeir betur rannsakað áhrif sætuefnanna á líkamann að sögn HealthDay.
Vísindamennirnir benda á að breytingar í þörmunum geti hugsanlega skýrt þetta. Fyrri rannsóknir höfðu sýnt að gervisætuefni geta haft áhrif á örveruflórunnar í þörmunum.
Vísindamennirnir telja einnig að gervisætuefni geti verið betri kostur en mikið magn sykurs en að það megi ekki líta fram hjá að þetta geti falið ákveðna áhættu í sér.
Rannsóknin leiddi einnig í ljós tengsl á milli mikillar neyslu á gervisætuefnum og aukinnar hættu á sykursýki 2 og hjartasjúkdómum.
Vísindamennirnir leggja áherslu á að það sér þörf á frekari rannsóknum áður en hægt sé að fullyrða að sætuefnunum sé um að kenna.