Pressan

„Ég sá minn eiginn dauða“

Mynd
Hjónin og fyrsta röntgenmynd sögunnar af manneskju.

Þann 22. desember 1895 bað þýski eðlisfræðingurinn Wilhelm Röntgen eiginkonu sína, Anna Bertha Ludwid, um að leggja aðra höndina á ljósmyndaplötu í 15 mínútur. Þegar myndin var framkölluð sáust bein hennar og giftingarhringurinn  sem virtist svífa um baugfingurinn.

Viðbrögð hennar voru: „Ich habe meinen Tod gesehen“ (Ég sá minn eiginn dauða“).

Röntgen hafði uppgötvað röntgengeisla nokkru vikum áður fyrir tilviljun þegar hann var að störfum í dimmri rannsóknarstofu sinni. Hann kallaði þá X-geisla því hann vissi ekki hvað þeir voru.

Tilraunin á eiginkonunni var fyrsta tilraunin á manneskju.

Uppgötvunin breytti læknavísindunum samstundis. Í fyrsta sinn var hægt að skoða lifandi líkama að innan án þess að skera hann upp.

Röntgen fékk Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði 1901. Hann neitaði að fá einkaleyfi á uppfinningu sinni og sagði að hún tilheyrði mannkyninu og ætti að vera aðgengileg öllum læknum.

 

Myndin af höndinni með hring er ein þýðingarmesta myndin sem nokkru sinni hefur verið tekin.