Pressan

Dæmdur fyrir tvö morð – Nú gæti DNA-rannsókn hreinsað nafn hans

Mynd
Michael Stone.

Michael Stone hefur setið í fangelsi í 28 ár. Hann var dæmdur fyrir að hafa myrt Lin Russell, 45 ára, og dóttir hennar, hina sex ára Megan, 1996. En nú er verið að gera DNA-rannsókn vegna efasemda um að Stone sé morðinginn. Það getur því hugsast að hann hafi verið ranglega dæmdur.

BBC segir að raðmorðinginn Levi Bellfield, sem afplánar ævilangan dóm, án möguleika á reynslulausn, fyrir að hafa myrt þrjár ungar konur hafi játað að hafa myrt Russelmæðgurnar.

Stone hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu.

Lögmaður hans, Paul Bacon segir að hann sé „mjög vongóður“ og trúi að niðurstöður nýrra rannsókna muni „að lokum verða til þess að hinn rauverulegi morðingi finnist“.

Lin Russel og dætur hennar, hin sex ára Megan og hin níu ára Josie, voru á gangi meðfram þjóðvegi í Kent þegar ráðist var á þær. Árásarmaðurinn batt þær, setti bindi fyrir augun á þeim og lamdi með klaufhamri.

Lin og Megan létust en Josie var skilin eftir í vegkantinum, alvarlega slösuð, til að deyja. Fyrir kraftaverk lifði hún af en alvarlegir höfuðáverkar, sem morðinginn veitti henni, hafa sett mark sitt á líf hennar.

Michael Stone var síðar dæmdur fyrir morðin og morðtilraun í þessu hryllilega máli sem skók breskt samfélag.

Það vakti raunar mikla athygli á sínum tíma að hann var dæmdur því engin sönnunargögn, sem tengdu hann við málið, fundust og engir sjónarvottar voru til staðar. Hann var sakfelldur  á þeim grunni að hann passaði við lýsinguna sem var gefin á morðingjanum.

Stone var þekktur afbrotamaður, eiturlyfjasjúklingur og þekktur fyrir mikla ofbeldishneigð.

Hann lamdi eitt sinn mann með hamri þegar hann framdi rán og drap næstum vin sinn með hnífi. Nokkrum dögum fyrir morðin hafði Stone haft í hótunum um að drepa einhvern og hann hafði einnig ógnað starfsmanni geðheilbrigðiskerfisins, þar sem hann naut þjónustu, með hamri.

En hugsanlega hefur hann setið saklaus í fangelsi í 28 ár.