Það var laugardaginn 18. janúar 2020 sem Sasha Krause, 27 ára, sagði vinkonum sínum, að sameiginlegum hádegisverði loknum í bænum San Juan í Nýju-Mexíkó, að hún ætlaði að aka út í kirkjuna þeirra, þær voru í mennónítasöfnuðinum, til að sækja kennslugögn sem hana vantaði fyrir kennslu í sunnudagaskólanum daginn eftir. Kirkjan var í nokkur hundruð metra fjarlægð.
Mennónítasöfnuðurinn fylgir ströngum trúarreglum, meðal annars er Internetið bannað, það má ekki kyssa utan hjónabands, allir verða að vera komnir inn í hús klukkan 21 þegar útgöngubann tekur gildi og konur verða alltaf að klæðast kjól.
Þegar vinkonur hennar áttuðu sig á því klukkan eitt um nóttina að hún var ekki komin aftur, rúmlega fjórum klukkustundum eftir að útgöngubannið tók gildi, voru þær vissar um að eitthvað hefði komið fyrir.
Þær vöktu hina safnaðarmeðlimina og byrjuðu að leita í nágrenninu. Þau fóru einnig í kirkjuna en fundu ekkert nema hvað bíll Sasha stóð ólæstur og mannlaus við kirkjuna.
Klukkan fimm höfðu þau samband við lögregluna og tilkynntu um hvarf Sasha.
Óvæntar upplýsingar frá vinkonu
Lögreglan byrjaði á að rannsaka bílinn. Bílastæðið var malarlagt og það voru engin ummerki í mölinni sem bentu til að eitthvað hefði gengið á á bílastæðinu.
Bíllyklarnir voru á milli framsætanna og taldi lögreglan það geta verið merki um að eitthvað óvænt og alvarlegt hefði gerst þegar Sasha lagði bílnum.
Engin ummerki um átök eða að eitthvað óeðlilegt hefði átt sér stað fannst inni í kirkjunni.
Sasha Krause.
Lögreglan velti fyrir sér hvort Sasha hefði verið numin á brott og að hún hefði ekki veitt mótspyrnu. Mennónítar eru friðarsinnar og lifa út frá hugmyndafræðinni um að ekki megi beita ofbeldi.
Lögreglan stóð uppi án nokkurra haldbærra vísbendinga. Sasha notaði hvorki Internetið né farsíma en hvoru tveggja eru mikilvæg verkfæri við sakamálarannsóknir í dag.
En skyndilega sagði ein vinkona hennar lögreglunni að Sasha ætti leynilega farsíma sem hún notaði bara þegar nauðsyn krafði. Annars var slökkt á honum. Mennónítar mega í sjálfu sér eiga farsíma en það er mjög óvanalegt að þeir eigi slík tæki.
Grunuðu yfirmann Sasha
Á meðan lögreglan beið eftir gögnum um farsímanotkun Sasha, byrjaði hún að ræða við safnaðarmeðlimi til að kanna hvort einhver hefði séð eitthvað eða heyrt.
Margir sögðust hafa séð bíl Sam Coon fyrir utan kirkjuna á svipuðum tíma og Sasha hvarf. Sam tilheyrði söfnuðinum og starfaði sem bókaútgefandi. Sasha vann hjá bókaútgáfunni hans sem gaf út trúarrit. Hún kenndi einnig í sunnudagaskólanum.
Sam var tekinn til yfirheyrslu. Hann sagðist hafa verið við kirkjuna þetta kvöld en hafi hvorki séð Sasha né bílinn hennar. Hann þvertók fyrir að hafa nokkuð með hvarf hennar að gera.
Sam Coon.
Þegar stjórnandi yfirheyrslunnar fór út úr yfirheyrsluherberginu í miðri yfirheyrslu, byrjaði Sam skyndilega að gráta. Lögreglan vissi ekki af hverju. Var það af sorg? Slæm samviska? Eða ótti við að vera gómaður?
Sam var látinn laus að yfirheyrslunni lokinni því engar sannanir voru fyrir að hann tengdist hvarfi Sasha. En lögreglan afskrifaði hann ekki.
Sasha fannst
Átta dögum eftir að Sasha hvarf, fékk lögreglan loks aðgang að farsímagögnum hennar. Meðal síðustu skráninganna voru fjöldi GPS-staðsetninga sem voru ólíkar venjulegum ferðum hennar. Síminn hafði farið í vestur, marga kílómetra, að eyðimerkursvæði í nágrannaríkinu Arizona.
Þetta var 260 ferkílómetra svæði, allt of stórt til að lögreglan gæti leitað þar.
Þann 21. febrúar var hringt í lögregluna frá Coconino County í Arizona. Göngumaður hafði fundið lík í Sunset gígnum, nærri Flagstaff, 60 kílómetra frá staðnum þar sem Sasha sást síðast. Líkið lýktist lýsingunni á Sasha.
Krufning staðfesti að líkið var af Sasha Krause.
Lík Sasha fannst að lokum.
Hún hafði verið slegin í hnakkann með hörðum hlut og skotin í höfuðið með 22 kalibera vopni. Úlnliðir hennar voru límdir saman með límbandi. Hún var ekki í nærfötum en réttarmeinafræðingar fundu engin merki um að henni hefði verið nauðgað eða beitt öðru kynferðislegu ofbeldi. Það voru heldur engin lífsýni úr öðrum á líkinu.
Nú var ljóst að lögreglan var ekki lengur að rannsaka mannshvarf, nú var þetta orðið morðmál.
Sam Coon var tekinn til yfirheyrslu á nýjan leik. Hann sagðist aldrei hafa komið til Flagstaff og það staðfestu símagögn hans. Lögreglan taldi því ljóst að hann hefði ekki komið að morðinu á nokkurn hátt.
Farsímagögn sögðu athyglisverða sögu
Lögreglan fékk góða hugmynd og rannsakaði símagögn Sasha og hvaða farsímasenda hann hafði notað og bar saman við aðra símanotkun á sömu sendum.
Einn sími reyndist fylgja sömu hreyfingum og hraða og sími Sasha. Hann tilheyrði Mark Gooch, 21 árs flugvirkja í herstöð í Phoenix í Arizona.
Lögreglan fór í herstöðina í apríl 2020 og yfirheyrði Mark.
Þegar hann var spurður hvaða trúfélagi hann hefði alist upp í kom svarið mjög á óvart. Hann hafði alist upp sem mennóníti. Hann sagðist hafa yfirgefið söfnuðinn því honum fannst lífsstíllinn of strangur.
Mark Gooch.
Hann sagðist einnig ekki hafa yfirgefið Arizona í rúmlega hálft ár.
Þegar lögreglan byrjaði að spyrja hann um Sasha Krause, sagðist hann hafa heyrt nafn hennar í fréttunum.
Þá sagði lögreglumaðurinn: „Ég er að rannsaka mál Sasha, getur þú giskað á af hverju við vildum tala við þig?“ Mark sagði að það væri kannski vegna þess að hann hefði farið til Nýju-Mexíkó á þeim tíma sem Sasha hvarf.
Lögreglan minnti hann þá á að hann hefði skömmu áður sagt að hann hefði ekki farið út fyrir ríkjamörk Arizona í sex mánuði. Mark dró þá framburð sinn til baka og sagðist vera útkeyrður.
Mark handtekinn.
Símagögnin sögðu lögreglunni að Mark væri að ljúga. Fljótlega játaði hann að hafa verið í Nýju-Mexíkó þennan dag að „heimsækja mennónítakirkjuna“. Hann sagðist hafa ætlað að sækja kvöldguðsþjónustu í kirkjunni í San Juan en hafi farið heim þegar hann áttaði sig á að það voru ekki guðsþjónustur á laugardögum. Hann sagðist hafa komið aftur í herstöðina um klukkan 02.
Upptökur úr eftirlitsmyndavélum herstöðvarinnar sýndu að hann kom ekki þangað fyrr en klukkan 06.57, fimm klukkustundum síðar en hann sagði. Þegar honum var kynnt þetta vildi hann ekki segja meira og bað um að fá verjanda.
Því næst var hann handtekinn.
Hataði mennóníta
Í farsíma Mark fann lögreglan fjölda textaskilaboða sem hann og einn bróðir hans höfðu skipts á. Bróðirinn var lögreglumaður í Virginíu.
Í skilaboðunum lýstu báðir yfir óbeit sinni á samfélagi mennóníta en báðir höfðu þeir tilheyrt því. Mark virtist hafa haft mikla ánægju af því þegar bróðir hans sagði honum að hann hefði handtekið eða stöðvað safnaðarmeðlimi.
22 kalibera riffill var skráður á Mark. Þegar riffillinn var rannsakaður kom í ljós að þetta var vopnið Sasha var skotin með.
Þegar réttarhöldin yfir Mark hófust í lok september 2020 lýsti hann yfir sakleysi sínu.
Þegar málflutningi var lokið dró kviðdómurinn sig í hlé til að komast að niðurstöðu. Það tók hann sex klukkustundir að komast að þeirri niðurstöðu að Mark væri sekur um morðið á Sasha.
Mark var dæmdur í ævilangt fangelsi eftir að foreldrar Sasha báðu dómarann um að dæma hann ekki til dauða.