Pressan

Ný rannsókn sýnir að veip getur skemmt æðarnar

Mynd
Það borgar sig ekki að veipa. Mynd/Pixabay

Notkun rafretta hefur aukist í mörgum löndum og sífellt fleiri virðast byrja að nota þær. Yfirvöld í mörgum ríkjum vinna að því að smíða nýjar reglur varðandi umbúðirnar, liti og bragð til að gera rafrettunotkun minna aðlaðandi, sérstaklega fyrir þá sem eru svo heppnir að hafa ekki enn ánetjast þeim.

Talið er að rafrettur séu ekki eins skaðlegar og venjulegar sígarettur en vísindamenn vita þó ekki enn um langtímaafleiðingarnar af notkun þeirra.

Vísindamenn við Manchester Metropolitan háskólann gerðu rannsókn, sem hefur verið birt í vísindaritinu ERJ Open Research, þar sem þeir rannsökuðu 75 manns, 30 ára og yngri. Þátttakendunum var skipt í þrjá hópa: reykingafólk, þeir sem notuðu rafrettur og þeir sem hvorki reyktu né notuðu rafrettur.

Þátttakendurnir hjóluðu á æfingahjóli á meðan vísindamennirnir mældu meðal annars súrefnisupptöku og virkni æðanna og tóku blóðprufur.

Niðurstöður rannsóknarinnar voru að bæði reykingafókið og rafrettufólkið mæddist fyrr en þeir sem notuðu ekki nikótín.

Vísindamennirnir fundu einnig merki um að æðar rafrettufólksins virkuðu ekki eins vel og hjá hinum. Þetta getur orðið til þess að líkaminn á erfiðara með að flytja súrefni þegar hann reynir á sig og það getur gert fólk þreytt fyrr.

Líkamlegt ástand rafrettufólksins var um 15% verra en hjá hjá þeim sem ekki reyktu.

Vísindamennirnir segja að notkun rafrettna geti haft áhrif á lungun og blóðflæðið á svipaðan hátt og reykingar.