Pressan

Andrew fyrrum prins í miklum vanda – Ákveðinn hópur manna getur orðið honum að falli

Mynd
Andrew fyrrum prins.

Breska lögreglan rannsakar mál tengd Andrew bróður Karls konungs og gæti niðurstaða rannsóknarinnar orðið prinsinum fyrrverandi mjög óhagstæð.

Daniela Elser, ritstjóri Mercury og sérfræðingur í málefnum bresku konungsfjölskyldunnar, segir að niðurstaða rannsóknarinnar sé eiginlega í höndum „hóps miðaldra karla“.

Andrew var handtekinn fyrr á árinu, grunaður um að hafa misnotað stöðu sína sem prins í tengslum við vinskap hans við bandaríska barnaníðinginn Jeffrey Epstein.

Vinskapur hans við Epstein hafði þá þegar kostað hann prinsatitilinn og það sem honum fylgir. Elser segir að framburður vitna geti orðið til þess að Andrew verði ákærður fyrir kynferðisofbeldi.

The Times segir að lögreglan hafi í hyggju að yfirheyra fjölskyldu Virgina heitinnar Giuffre en hún sakaði Andrew um að hafa beitt sig kynferðislegu ofbeldi. Andrew gerði sátt við hana fyrir nokkrum árum og greiddi henni bætur. Giuffre tók eigið líf fyrir ekki svo löngu.

Lögreglan ætlar að yfirheyra fyrrum lífverði Andrew og þeir eru einmitt fyrrgreindur hópur „miðaldra karla“ sem gæti fellt Andrew. Elser benti á að þeir hafi fylgt honum við hvert fótmál árum saman og hafi verið með honum þegar hann umgekkst Epstein.

Í Epsteinskjölunum kemur fram að lífverðirnir hafi verið með Andrew þegar hann heimsótti Epstein í New York og Flórída og í einkaflugvél Epstein og á einkaeyju hans í Karíbahafinu.

Af þessum sökum er Elser sannfærð um að sumir af lífvörðunum hafi meðvitað horft fram hjá því sem Andrew tók sér fyrir hendur með Epstein.

Hún sagði að ein áleitin spurning til lögreglunnar vakni í þessu samhengi: „Af hverju tók þetta ykkur svo langan tíma?“