Kuldi getur verið góður fyrir þig en þó að sjálfsögðu með ákveðnum fyrirvörum. Hugmyndin um að kuldi sé hollur er ekki ný af nálinni og það hefur auk þess verið sýnt fram á það með rannsóknum að kuldi getur haft margvísleg jákvæð áhrif á líkama og sál.
Metro tók saman lista yfir helsta ávinninginn af kulda fyrir líkamann.
Betra blóðflæði – Hitasveiflur hafa jákvæð áhrif á blóðflæðið. Í kulda dragast æðarnar saman til að halda líkamshitanum stöðugum. Þegar líkaminn hitnar á nýjan leik, víkka æðarnar. Þetta ferli þjálfar æðakerfið og þannig getur kuldi lagt sitt af mörkum til betra blóðflæðis.
Aukin fitubrennsla – Fyrir um tíu árum síðan uppgötvuðu vísindamenn að fullorðið fólk er með virka brúna fitu. Brúnar fitufrumur framleiða allt að 300 sinnum meiri hita en aðrir líkamsvefir. Þær innihalda sérstakt prótín sem breytir hitaeiningum beint í hita en hvítu fitufrumurnar gegna aðallega því hlutverki að vera orkulager.
Brúna fitan virkjast þegar hitinn fer niður fyrir 18 gráður. Þá verður líkaminn að leggja mikið á sig til að halda sér heitum og notar þá meiri orku. Ef fólki verður reglulega kalt, stundar kuldaþjálfun, getur magn brúnu fitunnar aukist og það örvar efnaskiptin.
Styrkir ónæmiskerfið – Það að lenda í kulda í skamma stund getur virkjað ónæmiskerfið. Rannsóknir hafa sýnt fram á að það að komast í snertingu við kulda, til dæmis við að synda í köldu vatni eða fara í kalda sturtu, getur valdið tímabundnum breytingum á fjölda hvítra blóðkorna sem gegna hlutverki í vörnum líkamans gegn sjúkdómsvaldandi lífverum.
Rannsóknir hafa sýnt að fólk, sem fer í kalda sturtu, verður sjaldnar veikara. Þetta segir þó ekkert um virkni ónæmiskerfisins.
Jákvæð áhrif kulda á heilann – Kuldi hefur ekki bara áhrif á líkamann því hann hefur einnig áhrif á heilann. Psychologic Magazine segir að þegar okkur verður kalt losni um adrenalín og endorfín í heilanum en þessir hormónar gegna hlutverki varðandi einbeitingu, skap og árvekni.
Þessir hormónar geta gert að verkum að fólki finnst það orkumeira, skýrara í hugsun og stundum í sæluvímu eftir að hafa orðið kalt. Kuldi getur einnig þjálfað stresskerfi líkamans þannig að fólk verður betra í að takast á við stress.
Betri svefn og meiri orka á daginn – Til að geta sofnað þarf líkaminn fyrst að kæla sig niður. Að sofa í svölu umhverfi getur því gert fólki auðveldara fyrir við að ná djúpum og góðum nætursvefni. Það er til dæmis hægt að láta gluggann vera opinn til að tryggja gott loftflæði í svefnherberginu.