Þetta læðist aftan að manni. Orkan er minni og gömlu venjurnar tryggja ekki lengur sama árangurinn. Margir upplifa að líkaminn breytist mikið eftir fimmtugt án þess að skilja ástæðuna.
Þetta snýst ekki bara um aldur, heldur um hvernig líkaminn vinnur öðruvísi með mat, vöðva og brennslu.
Samkvæmt því sem segir í umfjöllun iDNEZ.cz benda næringarfræðingar á að ef halda á þyngdinni í jafnvægi sé mjög mikilvægt að gera breytingar á mataræðinu.
Þegar við eldumst hægir á efnaskiptunum og vöðvamassinn minnkar stig af stigi. Þetta þýðir að líkaminn brennir færri hitaeiningum en áður. Þetta gerir að verkum að prótín skiptir gríðarlega miklu máli því það hjálpar til við að varðveita vöðvana og veitir lengri mettunartilfinningu.
Matvæli á borð við fisk, egg, belgjurtir og mjólkurvörur eru oft nefndar sem mikilvægar í tengslum við þetta.
Holl fituefni skipta líka miklu máli. Sérstaklega omega-3 úr fiski og hnetum hefur verið tengt við bætta heilastarfsemi og minni bólgur.
En svo er það sem þarf að sleppa. Sykur og kolvetni eru meðal stærstu vandamálanna því þau geta truflað blóðsykurinn og gert fólki erfiðara að hafa stjórn á þyngdinni.
Áfengi er einnig allt annað en gott því það inniheldur hitaeiningar án þess að næra líkamann og það getur haft neikvæð áhrif á svefn og brennsluna.
Sérfræðingar segja að með því að gera smávegis breytingar á daglegum venjum sé hægt að ná árangri í baráttunni við að halda aftur af þyngdaraukningu.
· Borðaðu litla matarskammta nokkrum sinnum á dag.
· Drekktu mikið vatn.
· Leggðu áherslu á neyslu trefja úr grænmeti og grófu korni.
· Blandaðu hreyfingu og styrktaræfingum saman.
Léttur prótínríkur kvöldmatur með grænmeti getur einnig hjálpað líkamanum að halda góðu jafnvægi.